Versions Compared

Key

  • This line was added.
  • This line was removed.
  • Formatting was changed.

Launaliðir eru hjartað í hverju launakerfi en ýmsar stillingar eru á hverjum og einum launalið sem ákvarða eiginleika hans og hvernig afreiknaðar færslur á borð við launatengd gjöld skulu reiknast. Aldrei má eyða út launalið sem hefur verið notaður í útborgun.

...

Almennt

Stöðugildi: Hak í þessum reit gefur upplýsingar um að þessi launaliður skuli notaður til útreiknings á  stöðugildum. 
Sækja álag í skráningu: Ef launaliður á að sækja álag sem skráð er í grunnlaunaspjald, þá þarf að haka við í þennan reit. Álag er notað af ríki og sveitarfélögum.
Einingar elta daga: Ef hakað er í þennan reit þá hlutfallast tímaeining út frá skráðri dagsetningu í launaskráningu. 
Ekki afrúna: Ef hakað er í þennan reit þá er samtalan ekki afrúnnuð. Þetta er eingöngu notað fyrir safnfærslur eins og t.d. orlofstíma. 

  1. Tegund segir til um hvort að launaliður sé laun, iðgjald, mótframlag, safnfærsla, skattaafsláttur, innheimta eða gjaldheimta.
  2. Hér skal velja hvort að launaliður byggist á einingum, tímum, dögum, kílómetrum, hlutfalli eða öðru.
  3. Hér skal velja hvort að launaliður sé skráður inn í launaskráningu eða hvort hann komi úr reiknivél.
  4. Ef launaliður þarf að kalla á annan launalið, er það sett inn hér. Dæmi um slíkt eru hlunnindi sem ekki eru greidd út úr launakerfinu, en þurfa að koma inn til þess að af þeim reiknist staðgreiðsla og/eða tryggingagjald. Þá er launaliðurinn merktur sem safnfærsla og frádráttarliður skráður inn hér í reikniliði og -1 í Stuðul. Athugið að reikniliður þarf að vera til, sjá kafla Reikniliðir.
  5. Þessi merking ræður því hvar á staðgreiðsluskilagrein launaliður lendir. Ef valið er óskilgreint kemur launaliður ekki fram á staðgreiðsluskilagrein.
  6. Þessar upplýsingar eru fyrst og fremst notaðar við skýrslugerð.




Reikningur

Image Modified

Stillt er á hvern launalið hvaða afreiknuðu færslur skuli reiknast. Aðrar stillingar geta haft áhrif til viðbótar.

Eftirfarandi reiknar eru í boði:

100 Staðgreiðsla - staðgreiðsluliðir 9141 og 9142 reiknast af þessum launalið út frá stillingum í Skatthlutföllum.

110 Staðgreiðslu afsláttur - afsláttarliðir 9110, 9111, 9120 og 9121 reiknast af þessum launalið ef starfsmaður er með skráð skattkort.

200 Orlofsútreikningur - launaliðir 9210 Orlof á laun eða 9280 Orlofstímar reiknast af þessum launalið eftir skráningum í orlofsspjald starfsmanns og reiknitegund launaliðar.

300 Lífeyrissjóður - launaliðir 9300 til 9399 reiknast á þennan launalið, eftir þeim sjóði sem skráður er á starfsmann.

400 Stéttarfélag - launaliðir 9400 til 9499 reiknast á þennan launalið, eftir því félagi  sem skráð er á starfsmann..

500 Tryggingagjald - launaliður 9501 reiknast á þennan launalið.

600 Gjaldheimtugjöld - færir þennan launalið inn í 75% reikniregluna í reiknivélinni.

700 Stöðugildi - reiknar greidd stöðugildi í útborgun, athuga að rétt merking sé í Einingar/Tímar. Ath. líka að ef launaliður er merkt tímar, þá þarf starfsmaður að vera með skráða tíma í Vinnutímaspjaldið, því það er notað til að finna rétta deilitölu.


Reikniform


  1. Reiknitegund er notuð við skilgreiningu á orlofsreikningi, reikningi á stéttarfélagsgjöldum og lífeyrissjóðsgjöldum.
  2. Reiknir nr. er stilltur inn á þá launaliði sem reiknivél notar og einnig til að stýra því hvar launaliður endar á skilagreinum.
  3. Reikniregla nr. er einnig notuð af reiknivél og skilagreinum.
  4. Reikniundirtegund er eingöngu notuð fyrir meðlag. Launaliðurinn meðlag verður að hafa þessa merkingu.
  5. Stofnun er eingöngu notað á launaliði eins og t.d. meðlag, eftirágreiddir skattar o.s.frv. þar sem aðeins einn innheimtuaðili kemur til greina. Númerið er þá númer viðkomandi innheimtuaðila. Stofnun númer 1 er frátekin. Það er til þess að ef staðgreiðslulaunaliðir eru handinnslegnar inn í launalínur þá fái þeir rétt stofnananúmer.
  6. Tímabil: Ef tímabil er sjálfgefið þá fylgir það tímabili greiðsluforms starfsmanns. Hægt er að festa tímabil á launalið, þannig að dagsetningar hans verði ávallt fyrirfram, eftirá eða að eigin vali.
  7. Staðgr.tímabil: Þetta tímabil ræður skilum staðgreiðslu til ríkisskattstjóra. Ef tímabil er sjálfgefið þá fylgir það tímabili greiðsluforms starfsmanns. Hægt er að festa þetta tímabil á launaliði. Dæmi fyrirframgreiddur starfsmaður : Staðgreiðsla af föstum launum skilast með fyrirfram tímabili, en staðgreiðsla af þeim launaliðum sem hafa verið merktir annað en sjálfgefið, skilast með völdu tímabili.
  8. Þessi valstika er notuð af skilagreinum, en þessi gjaldategund stýrir því hvaða bókstafur fylgir gjaldi á skilagrein sem skrifuð er í skrá.

...