Áður en vinnsla við útborgun getur hafist þarf að stofna nýja útborgun í kerfinu. Það er gert með því að smella á stofna í launahringnum. Þá opnast gluggi með upplýsingum úr þeirri útborgun sem er valin í fellivali efst í vinstra horni skjámyndar | |
Haka við eftirá og/eða fyrirframgreidd laun eftir því sem við á. Ef notaðir eru launahópar þá er númer hóps skráð í reitinn Launahópur nr. og sækir kerfið þá nafn hóps. Aðeins þeir starfsmenn sem skráðir eru í viðkomandi launahóp, verða aðgengilegir í þessari útborgun. Ef enginn launahópur er valinn, þá koma allir starfsmenn fyrirtækis fram í útborgun. Launahópur er stofnaður úr grunnlaunaspjaldi starfsmanna. Ef valinn er launahópur sem enginn starfsmaður hefur fengið úthlutað, þá opnast skráningarmynd launa ekki. Á skjáinn kemur villumeldingin | |
Greiðslutíðni: Mánaðarlaun koma sjálfvalin upp í greiðslutíðni þegar útborgun er stofnuð og er algengasta greiðslutíðnin. Í einhverjum tilfellum er verið að nota greiðslutíðnina "Hálfsmánaðar" en þær útborganir verða að vera innan skilagreinamánaðar RSK, þó svo að vinnutímabil skarist mögulega við aðra mánuði. Dæmi: Vinnutímabil er frá 28. september til 12. október. Þá er dagsetning útborgunar skráð frá 1.-15. október en í önnur tímabili er skráð rétt vinnutímabil. Næsta tímabil er frá 13.- 27. október. Dagsetning útborgunar er skráð 16.-31. október en rétt vinnutímabil skráð í önnur tímabil. Á þennan hátt reiknast persónuafslátturinn ávallt rétt fyrir mánuðinn og staðgreiðsluskilagrein fer eðlilega inn til RSK. | |
Þegar aðeins er verið að greiða eftirá greidd laun:
Þegar laun eru aðeins greidd eftirá eru þau yfirleitt greidd út síðasta dag mánaðar.
Tímabil endar = síðasti dagur þess mánaðar sem skráður er í útborgunardag | |
Þegar aðeins er verið að greiða fyrirframgreidd laun
Tímabil endar = síðasti dagur þess mánaðar sem skráður er í útborgunardag | |
Þegar verið er að greiða bæði eftirá- og fyrirframgreidd laun
|
Page Tree | ||
---|---|---|
|