Versions Compared

Key

  • This line was added.
  • This line was removed.
  • Formatting was changed.


Hækka launatöflu

Image Modified

Image Added

Hækkanir á launatöflu eru framkvæmdar í launatöflu listanum undir Kjarni – Laun. Til að hækka töflu er viðeigandi tafla valin í listanum vinstra megin í kerfinu. Þegar búið er að velja þann samning sem á að hækka er smellt á iconið „Aðgerðarhjól" sem er lengst til hægri í tækjastikunni.


Einnig er hægt að hægrismella á launatöfluna og velja þar „Hækka launatöflu"


Athugið að ef á að hækka launatöflu sem á að taka gildi á sama tíma t.d. vegna áætlunar þarf að setja inn annan gildisdag þegar tafla er hækkuð, fara svo í nýju töfluna og breyta gildir frá dagsetningu og tegund.

Image Added


Ef hækka á seinna svona töflu sem hefur sama gildistíma tvisvar, þarf einnig að breyta Gildir frá á annarri töflunni t.d. í 02.10.2021,  áður en farið í aðgerðina að hækka,   hækka svo töfluna og breyta svo gildistíma til baka í 01.10.2021 í þessu dæmi.


Image Modified

Í glugganum sem opnast eru upplýsingar um þá töflu sem á að hækka efst. 


Í neðri hluta gluggans eru slegnar inn upplýsingar um gildistíma hækkunar, hvort um sé að ræða hlutfallshækkun eða krónutöluhækkun. Einnig er hægt að skrá inn ef tafla á að hækka að lágmarki um ákveðna krónutölu og eins ef hámark er á hækkun. 

Þegar launatafla er hækkuð flyst óbreytt allt sem skráð var í hlutfall og fasta í eldri töflu. 


Ef að launatafla er leiðrétt aftur í tímann getur kerfið á einfaldan máta endurreiknað laun í greiddum útborgunum. Sjá nánar í Leiðrétta laun afturvirkt.