Versions Compared

Key

  • This line was added.
  • This line was removed.
  • Formatting was changed.

Í Kjarna er á einfaldan máta hægt að skila upplýsingum um kjarakannir til Hagstofu, Intellecta, PwC og einnig til Sveitarfélaga auk þess sem einfalt er að taka út upplýsingar fyrir jafnlaunavottun.

Page Tree
root@self

Hagstofan tekur við kjarakönnun Kjararannsóknar, sjá nánar hér.

Af heimasíðu Intellecta:

Laun eru stærsti útgjaldaliður flestra fyrirtækja. Takmörkuð þekking á launaumhverfi fyrirtækis getur valdið mistökum við ráðningar og leitt til rangrar launastefnu. Hvoru tveggja getur haft kostnaðarsamar afleiðingar fyrir fyrirtækið auk óhagræðis vegna starfsmannaveltu. Góð þekking á launaumhverfinu getur á hinn bóginn skilað sér í miklum sparnaði og hagræðingu.

Intellecta hefur um árabil unnið ítarlegar greiningar á launum og heildarkjörum starfsfólks í flestum geirum atvinnulífsins. Reynslan hefur sýnt að þær greiningar verða fljótt lykilatriði í mótun launastefnu og við ráðningar hjá þeim fyrirtækjum sem hafa tekið þátt.
 
Fjöldi starfsstétta og hagsmunahópa í þjóðfélaginu þarf að hafa aðgang að greinargóðum og áreiðanlegum upplýsingum um kaup og kjör síns fólks. Erfitt er að ganga til samninga við atvinnurekendur eða opinbera aðila eða ráðleggja einstaklingum í umsóknarferli séu þær upplýsingar ekki fyrir hendi. Intellecta gerir sérhannaðar kjarakannanir ætlaðar öllum þeim hópum og stéttum sem þörf hafa fyrir þessar upplýsingar. Allar kjarakannanir eru lagaðar að þörfum viðkomandi hóps.