1. Senda launaseðla og bankaskilagrein



Senda launaseðla í netbanka

 

Senda launaseðla í netbanka

 

Þegar búið er að loka útborgun er hægt að senda launaseðla í banka. Launaseðlar eru vistaðir á drif notandands sem XML skrár sem síðar eru lesnar inn í netbanka fyrirtækis. 
Til að sækja skrá sem XML er farið í Launaseðlar í netbanka í hliðarvalmynd launa, í efri hluta undir Aðgerðir.

Kjarni kemur með kennitölu fyrirtækis, ásamt útborgunardagsetningu, en það er það form sem Reiknistofan krefst í heiti launaseðla. Í lok heitis kemur _01 en það er notað ef senda þarf fleiri en eina skrá á sama degi, þá er _01 breytt í _02.

Kjarni geymir söguna í aðgerðaskrá, þannig að ef reynt er að vista sömu skrána aftur, opnast samtalsgluggi þar sem spurt er hvort yfirskrifa skuli fyrri skrá.

Þar er einnig nefnt að ef það eigi að búa til viðbótarskrá þá skuli hækka númerið úr _01 í _02 

Til að vista launaseðla sem .pdf skjal er farið í Launaseðlar vinstra megin við launahringinn og þeir keyrðir á skjáinn. Síðan er valið prenta í skrá sem pdf.



Skrifa bankaskrá

 

Skrifa bankaskrá

 

Hægt er að vista inn í Kjarna hvar skrár skuli vistast. Ef það er ekki gert þá man Kjarni síðustu skráningu.

Til að vista niður skráarsvæði er farið í Flipann Stillingar og þar í Gildi.

Skipunin sem skrifuð er í reitinn Nafn er SysBank.DiskPath fyrir launaskrá og SysBankHoliday.DiskPath fyrir orlofsskrá.
Kódi er notaður til að auðvelda leit, nafnið gæti t.d. verið Skráarslóð.
Gildi er skráarslóð ásamt heiti skrár, t.d. G:\Kjarni\@PayCompanyName\@PayID_bankaskrá.txt (@PayCompanyName sækir heiti fyrirtækis, PayID sækir númer útborgunar)

 

Bankaskilagreinar eru lesnar inn í gegnum netbanka fyrirtæka. Launa- og orlofsskilagreinar á txt formi eru sóttar eftir lokun útborgunar í gegnum Skila í launahringnum. 

Opna þarf möppuna Banki, hægrismella á aðra skilagreinina í einu og vista hvora um sig sem textaskjal niður á drif notandans. Þangað er hún síðan sótt í gegnum viðskiptabanka á netinu.

Einnig er hægt að senda launa- og orlofsgreiðslur beint í netbanka með vefskilum (B2B) í gegnum Bankamiðju Origo.

Þeir sem eru með tengingu við Bankamiðjuna geta smellt á “STaðfesta bankareikninga” til að kann hvort að allir bankareikningar í skilagrein séu réttir.

Hægt er að senda póst á service@origo.is til að fá frekari upplýsingar um tengingu við Bankamiðju Origo.

 

Uppsetning textaskrár er skv. staðli frá Reiknistofu bankanna.

Til þess að fyrsta línan í skjalinu komi rétt, þá þarf að skrá númer viðskiptabanka fyrirtækis í spjald fyrirtækis. Það er gert í hliðarvali > Kjarni > Stofnskrár > Fyrirtæki.

0101 er númer viðskiptabanka fyrirtækis, AH stendur fyrir launafærslur og 110822 er dagsetning, þ.e. sá dagur sem skráin er skrifuð.

04 fyrir aftan bankareikning og kennitölu starfsmanns, stýrir textanum sem kemur á færsluna í heimabanka starfsmanns og 04 stendur fyrir LAUN.

 

SP stendur fyrir orlofsfærslur

82 fyrir aftan bankareikning og kennitölu starfsmanns, stýrir textanum sem kemur á færsluna í heimabanka starfsmanns og 82