3. Vefskil skilagreina, lífeyrissjóðir og stéttarfélög
Til að senda skilagreinar til innheimtuaðila er smellt á Skila í launahringnum. Þetta svæði er aðeins aðgengilegt í lokaðri útborgun. | |
Tvær yfirmöppur eru í Skilagreinum í Skila, en mismunandi er eftir viðskiptavinum hversu margar möppur eru þar undir. Fyrsta mappan, Útborgun sem hér er merkt: = 2759 kemur hjá öllum. Undir þessari möppu eru skilagreinar til þeirra innheimtuaðila sem fá skil fyrir alla útborgunina í einu:
Seinni mappan, Skilagreinamánuður, hér merkt : Febrúar 2018 kemur líka hjá öllum, þar sem staðgreiðslu er ávallt skilað skv. skilagreinamánuði.
Ef enginn sjóður er skilgreindur þannig að senda eigi með tölvupósti þá myndast sú mappa ekki. Mappa myndast ekki nema eitthvað sé í henni. | |
| Þegar myndin opnast kemur hakað við innheimtuaðilana „Senda vefskil" sjálfkrafa á hverjum sjóði. Ef ekki náðist að senda alla sjóði vera þeir sjóðir sem eftir á að senda áfram undir möppunni. Hægt er að fara aftur í “Senda vefskil” til að reyna aftur sendingu eftir að búið er að lagfæra ástæðuna fyrir því að ekki náðist að senda í fyrra skiptið.
|
Ef senda á aftur á ákveðinn innheimtuaðila er hægrismellt á þann innheimtuaðila og velja Senda með vefskilum. Taka út gildið 2 í valskjá undir flipanum Aðgerð Einnig þarf að haka við innheimtuaðilann í skjámyndinni og þá kemur upp spurningin hvort það eigi örugglega að senda aftur. Ef að villa er í sendingu kemur kerfið upp með villuglugga. Villumeldingin kemur á hægri hlið skjámyndar og svarið frá vefnum kemur fyrst stutt í svæðið Skilaboð og síðan nákvæmari í svæðið Nánari skilaboð. Að sendingu lokinni bætast við nýjar upplýsingar í reitinn Móttekið, en það er svarið sem Kjarni fær sent frá Innheimtuaðilum og sýnir hvaða upphæð er móttekin hjá þeim.
| |
| ATH! Þegar nýir aðilar bætast við í vefskilum, þá þarf að sækja þær upplýsingar inn á skilagrein.is. Það er gert með því að keyra eftirfarandi skipanir: Slá þarf inn skipanir í þessari röð: · Innheimtuaðilar: · Skipun: WebCollector.ToPayCollector · Vefþjónusta: http://www.skilagrein.is/info/webservices/CollectorEntity.xml · Sjóðir: · Skipun: WebFund.ToPayCollectorFund · Vefþjónusta: http://www.skilagrein.is/info/webservices/FundEntity.xml |
Yfirlit yfir send vefskilÍ hliðarvali Kjarna > Laun > Aðgerðir er komin aðgerðin Send vefskil. Þegar smellt er á þennan hnapp opnast valskjár þar sem hægt er að skilyrða valið við eitt eða fleiri atriði, þ.e.: útborgun, ákveðinn innheimtuaðila eða sjóð/félag og einnig sendingardag eða tegund. Upp kemur listi yfir þær sendingar sem uppfylla valið. Til að skoða nánari upplýsingar um hverja sendingu fyrir sig, er tvísmellt á línuna. Nánari upplýsingar opnast í sprettiglugga. Sá gluggi inniheldur fjóra flipa með mismunandi upplýsingum, sjá aftar. | |
| Dæmi um sendingu sem ekki skilar sér til innheimtuaðila: Fyrsti flipinn ber heitið Svar frá innheimtuaðila. Þar kemur fram hver niðurstaða sendingar var (hér Error) einnig kemur ástæðan fram í reitnum Skilaboð og í Nánari skilaboð. Ef sending fór villulaust til innheimtuaðila þá bætis móttekin upphæð við neðst í glugganum í reitinn Bókuð upphæð. Fyrir kemur að önnur upphæð kemur í reitinn Leiðrétt upphæð, en þá er reikningurinn sem fram fer hjá innheimutaðila á einhvern hátt frábrugðinn því sem sent er úr Kjarna. |
Yfirlit yfir tölvupóstsendingarÞegar sjóðir eru sendir með tölvupósti beint úr skilagreinamynd Kjarna þá skrást þær sendingar í "Aðgerðarsögu" viðkomandi útborgunar. Aðgerðarsöguna er að finna undir Laun - Aðgerðir - Aðgerðarsaga. Þetta á við um póstsendingar með lífeyrissjóði, stéttarfélög og gjaldheimtur. Undir hverri tegund er tilgreint hvað var sent, hvenær og á hvaða netfang. |