Aldurshækkanir - Stillingar á launatöflur

Tengja þarf hækkunarreglur inn á launatöflur auk þess sem skilgreina þarf hækkunarmynstrið fyrir þessa tilteknu launatöflu.

Farið er í Launatöflur undir Kjarni > Laun

Viðkomandi launatafla er fundin og farið í flipann Aldurshækkanir, sjá punkt nr. 1 á skjámynd. Tryggja þarf að viðkomandi launatafla sé örugglega valin, sjá punkt nr. 2. Smellt er á  hnappinn og viðkomandi hækkun er valin, sjá punkt nr. 3. Færslan er svo vistuð.

Þegar færslan hefur verið vistuð þá er smellt á , hækkunarmynstrið skilgreint fyrir viðkomandi launatöflu og breytingarnar vistaðar með því að smella á Geyma og loka.

Ef það kemur upp villa þegar hækkunarmynstrið er vistað þá hefur líklega gleymst að vista hækkunarregluna inn á töfluna, sjá punkt nr. 4 á skjámyndinni hér að ofan.

Dæmi um álagshækkun v/starfsaldurs:

Dæmi um aukaflokkahækkun v/lífaldurs:

 Dæmi um þrepahækkun v/lífaldurs:

 

Orlofshækkun

 

Orlofshækkun

 

 

Ef um mismunandi orlofsflokkahækkanir eru að ræða eftir samningum verður að stofna orlofshækkunarreglur í samræmi.

Flipinn Aldurshækkanir valinn. Til að stofna nýja orlofsflokkahækkun er farið í punktana þrjá.

 

Þar er farið í græna plúsinn á valstiku.

 

Hækkunarregla vísir; Næsta lausa númer á hækkunarreglu.

Hækkunarregla; Velja nafn á hækkunarregluna

Starfsaldurshækkun; Velja þarf regluna sem kerfið á að fara eftir; Lífaldur, starfsaldur í fyrirtæki eða heildarstarfsaldur.

Stofna og loka.

 

Til að skilgreina hækkunarregluna þarf að velja hana og fara í stækkunarglerið

 

Starfsaldursregla; Fara í punktana þrjá til að velja inn starfsaldursreglu; Lífaldur, starfsaldur í fyrirtæki eða heildarstarfsaldur.

Starfsaldur; Setja inn árafjöldann sem þarf að vera búið að ná til að hækka um flokk.

Orlofsflokkur fé og Orlofsflokkur tímar; setja inn orlofsflokk.

 

Vista og loka.