Í Kjarna er hægt að stofna markhópa og tengja á námskeið. Markhópar eru notaðir ef námskeið er ætlað fyrir ákveðinn hóp starfsmanna og ætti t.d. ekki að vera sýnilegt öðrum starfsmönnum í Næstu námskeið á starfsmannavef.
Ef markhópur er tengdur á námskeið þá birtist viðkomandi námskeið eingöngu á starfsmannavef þeirra starfsmanna sem tilheyra þeim markhóp sem tengdur er á námskeiðið. Námskeið sem enginn markhópur er tengdur á birtast á starfsmannavef hjá öllum starfsmönnum.
Listi yfir markhópa er aðgengilegur í hliðarvalmynd Kjarna undir Kjarni > Fræðsla.
Eins og við stofnun á öðrum gögnum í Kjarna er smellt er á hnappinn til þess að stofna nýjan markhóp.
Markhópar geta samanstaðið af fyrirtækjum, skipulagseiningum, stöðum og/eða starfsmönnum.
Ný lína er stofnuð og viðeigandi markhópstegund og gildi valið. Hægt er að skrá eins margar línur og þarf. Að lokum er markhópurinn vistaður.
Þegar markhópur hefur verið stofnaður er hægt að tengja hann á námskeið.
Markhóp er hægt að tengja á námskeið í flipanum Tími og markhópar á viðkomandi námskeiði.
Hægt er að tengja fleiri en einn markhóp á námskeið ef við á.