Bætt hefur verið við valmöguleika að raða umsóknum í tímaröð í Stöðuborð og Ferilskrár. Var hnappnum ABC breytt í flettival þar sem hægt er að velja um að raða listunum í stafrófsröð, tímaröð eða umsóknarröðun.
Bætt hefur verið við valmöguleika að raða umsóknum eftir umsóknarröðun í Stöðuborð. Var hnappnum ABC breytt í flettival þar sem hægt er að velja um að raða listunum í stafrófsröð, tímaröð eða umsóknarröðun.
Núna er hægt að breyta umsóknarröðun á mörgum í listanum Umsóknir og svör.
Í listanum Umsækjendur hefur verið bætt við dálkunum Breytt þann og Breytt af.
Á flísinni fyrir Samskipti var textinn ekki að birtast réttur ef textinn var mjög langur, var að fara út fyrir flísina. Þetta hefur verið lagað.
Flísin fyrir Skjöl birtir núna bara þrjár nýjustu færslurnar. Hægt er að sjá eldri skjöl með því að velja Fleiri færslur.
Það komu upp vandamál við að opna ferilskrár umsækjanda á vefnum en var hægt að opna skjölin í client. Þetta hefur verið lagað.
Þegar raðað var eftir stöðu umsóknar í listanum Umsóknir og úrvinnsla var listinn ekki að raðast rétt. Þetta hefur verið lagað.
Núna er hægt að fela Auglýsingar og úrvinnsla, Umsækjendur og Þekking og reynsla í hliðarvalmynd. Ef viðskiptavinir vilja fela eitthvað af þessum valmöguleikum eru þeir beðnir um að senda beiðni þess efnis á service@origo.is
Notendanafn og þjóðerni var að koma tómt í starfsmannalistanum. Þetta hefur verið lagað.
Þegar starfsmannalisti er núna keyrður upp er hann í stafrófsröð. Einnig var bætt við síu á dálkinn Fyrirtæki.
Bætt hefur verið flís fyrir Samskipti undir Teymið mitt. Þessi flís birtist ekki sjálfkrafa undir Teymið mitt heldur þarf að setja inn stillingu til þess að birta þessa flís. Ef viðskiptavinir vilja birta þessa flís eru þeir beðnir um að senda beiðni þess efnis á service@origo.is.
Útbúin hefur verið stillingin “PayApprove.ExtraWageIDs” svo að hægt sé að birta í launasamþykkt á vef einstaka safnfærslu og frádráttaliði. Í gildi eru þá taldir upp þeir launaliðiur sem á að birta á vefnum.
Ath. að ekki er hægt að birta launaliði sem eru af tegundinni gjaldheimta þar sem birting þeirra liða samræmist ekki GDPR.
Þegar kveikt er á skipuninni "PayCalcSum.Split" voru færslur í launaáætlun ekki að birtast réttar á skráðar skipulagseininginar, kostnaðarstöðvar eða stöður. Þetta hefur nú verið lagfært og er birtingin á vef í samræmi við skráningu í Client.
Starfsmenn með tegund ráðningar Stjórnarmaður eru nú undanskildir og birtast ekki í lykiltölum á upphafssíðu.
Svæðinu Starfsaldur launa (RecruitingDatePayYearMonthDays) hefur verið bætt við mail merge svæðin í rafrænar undirritanir.