Ekki var hægt að velja hnappinn Hreinsa síur í dálkunum Auglýsing, Tengiliður og Samstarfsaðili undir Auglýsingar. Þetta hefur verið lagað.
Þegar verið var að sía eftir stöðu auglýsingar þurfti að setja inn númer stöðunnar. Því hefur verið breytt í heiti á stöðu auglýsingar.
Í töflusýn fyrir auglýsingar var talning á nýjum umsóknum ekki að virka. Þetta hefur verið lagað.
Ef auglýsing var afrituð á Kjarna vefnum þá tók vistun mjög langan tíma og þurfti að fríska vefinn. Auglýsingin aftur á móti stofnaðist. Þetta hefur verið lagað.