Eftirtöldum hnöppum hefur verið bætt við auglýsingahluta upphafsvalmyndar ráðninga svo hægt sé m.a. að stofna auglýsingu, komast í auglýsingasvör og flytja lista yfir í Excel beint úr upphafsvalmyndinni.
Röðun í listanum Auglýsingasvör hefur verið breytt þannig að þegar hann keyrist upp birtist nú nýjasta umsóknin efst og sú elsta neðst.
Tengsl aðstandanda fyrir umsækjanda er nú hægt að birta í listanum Auglýsingasvör
Eftirtöldum hnöppum hefur verið bætt við upphafsvalmynd ráðninga. Það er því hægt að stofna, breyta, eyða og afrita auglýsingu beint frá upphafsvalmyndinni auk þess sem hægt er að flytja listann yfir í Excel og keyra upp listann auglýsingasvör beint frá upphafsvalmyndinni.
Listinn Auglýsingasvör keyrist nú upp þannig að nýjasta umsóknin kemur efst í listann. Svæðið Umsókn stofnuð þann birist nú þegar listinn er keyrður upp svo fljótlegt er að smella á fyrirsögnina til að breyta röðinni út frá dagsetningunni en áður þurfi að velja svæðið fyrst inn í listann.
Í framhaldi þess að viðbótarsvæðum var nýlega bætt við auglýsingamyndina hefur nú verið uppfært hvernig ferðast er um skjámyndina með tab hnappinum svo þægilegt sé að skrá upplýsingar inn í skjámyndina með sem fæstum músasmellum.