Ef starfsmaður með merkinguna “Aðeins í áætlun” var skráður með færslu í launabunka þá var hann að lesast inn í launaskráningu en birtist þó ekki í starfsmannalista útborgunar. Þessi virkni hefur verið lagfærð svo að starfsmenn sem merktir eru í áætlun lesast ekki inn heldur kemur upp villumelding um að launamaður sé ekki í útborgun.
Hjá stórum viðskiptavinum hefur verið hægagangur í bunkainnlestri úr bunkumn með miklum fjölda færslna. Aðgerðin hefur verið yfirfarin og henni flýtt með tillit til gagnamagns.
Þar sem sama virkni er fyrir innlestur í áætlun og er fyrir innlestur í launaskráningu þá var sú aðgerð einnig yfirfarin og flýtt með tilliti til gangamagns.
Stillingar bókhaldslykla voru gerðar skýrari þannig að ef annað hvort Laun, Ávinnsla eða Bókhald er valið þá opnast lyklarnir fyrir valda tegund og raðast niður á hvert fyrirtæki fyrir sig ef verið er að vinna með mismundi lykla á milli fyrirtækja.
Það var að koma villa ef reynt var að sía á launafulltrúa í valskjá listanna “Grunnlaun” og”Vinnutími”. Gerð var lagfæring á því svo ekki kemur lengur upp villa þegar síað er á launafulltrúa.
Ef ekki er kveikt á rafrænum undirritunum er hægt að senda tölvupóst þegar launabreyting er stofnuð. Þeirri virkni hefur verið breytt þannig að þegar valið er að senda upplýsingar um samþykki launabreytingar í tölvupósti þá kemur viðtakandasvæðið sjálfgefið tómt og notandinn þarf að velja inn annað hvort stofnanda launabreytingar (stjórnanda), starfsmanninn eða báða.
Í skýrslum og listum á Kjarna vef er hægt að birta kostnaðarstöðvar. Fyrirsögnin sem birtir dálkana er kostnaðarstöð nr en verið var að birta kostnaðarstöð vísir. Þetta hefur nú verið lagfært og undir kostnaðarstöð nr eru að birtast réttar upplýsingar.
Undir Laun á Kjarna vef er núna fyrirtækjalisti og dálkalisti aðgengilegir fyrir Admin notendur. Þessi listar eru mun hraðvirkari en listarnir í client og ráða við meira gagnamagn. Sjá nánari upplýsingar hér: Laun á vef
Útbúið hefur verið nýtt vefgildi sem festir skráðar upplýsingar í dagpeningabeiðnum á Kjarnavef til að auðvelda skráningu þegar verið er að skrá beiðnir á marga starfsmenn í einu útfrá sömu skilyrðum. Vefgildið er Kjarni.Web.PerDiem.DoNotClearForm og til að virkja það er sett true í gildi.
Útbúin hefur verið ný gengisþjónusta sem sækir gengi Seðlabanka Íslands. Hægt er að senda beiðni á service@origo.is fyrir frekari upplýsingar og stillingar.
Nú er hægt að draga fyrirtæki og fyrirtæki nr. inn í listann yfir samþykkta og óbókaða dagpeninga. Virknin í bókun var lagfærð þannig að hægt er smella á “Bóka dagpeninga” og þá bókast aðeins færslur þeirra starfsmanna sem tilheyra valinni útborgun.
Útbúið hefur verið vefgildi til þess að birta nýtt svæði fyrir tilvísunarnúmer í skráningu dagpeninga á Kjarna vef. Þetta nýja svæði nýtist þeim sem þurfa að skrá númer Jira máls með beiðninni. Þetta númer fylgir með yfir í dagpeningaskráninguna í Kjarna client og hægt að bæta því í bókunarskrá ef þörf er á að bóka þetta númer. Hægt er að senda póst á service@origo.is til þess að láta virkja þetta vefgildi.
Eftir breytingar sem gerðar voru á uppfærslu gagna frá Kjarna til Vinnustundar þá voru hættir starfsmenn að halda áfram að birtast í Vinnustund. Þetta hefur nú verið lagfært svo hættir starfsmenn birtast ekki lengur í Vinnustund.
Tengt breytingum á tengingu Kjarna við Vinnustund gerðist það hjá nokkrum viðskiptavinum að hættir starfsmenn fóru að birtast sem núverandi yfirmenn. Þetta hefur verið lagfært.
Þegar skipulagseiningu er breytt eða hún gerð óvirk þá uppfærist nú sú breyting beint í Vinustund án þess að keyra þurfi skipunina til að flytja allar skipulagseiningar yfir.
Stofnun og uppfærsla á stöðum í vinnustund hefur ekki verið að virka nógu vel og ný heiti ekki verið að uppfærast. Það var því útbúin ný skipun fyrir uppfærslu sem heitir: TMOrgCompanyUnitPosition.CreateUpdate.
Þessi skipun er keyrð fyrir ákveðna stöðu með því að setja punkt og númer stöðu aftan við skipunina í skipanaglugga.
Gerð var lagfæring að aðgerðinni “Endurstofna sögu í Vinnustund” svo hægt sé að keyra hana fyrir fleirri ráðningarmerkingar en “Í starfi”.
Þegar dálkalisti var opnaður á vef sem innihélt marga dálka þá var niðurbrotð að koma yfir upplýsingar í listanum. Þetta hefur verið lagfært og niðurbrotið fest svo hægt sé að skoða allar upplýsingar listans.
Notendur gátu ekki almenninlega unnið með gögn úr dálkalistum áætlunar þar sem þeir voru að opnast sem pivot. Þeim hefur núna verið breytt þannig að Þeir opnast sem tafla. Einnig voru aukastarfir lagfærðir í exportinu þannig að Þeir haldast réttir í excel.