Jafnlaunavottun - Jafnlaunagreining BSI og Logib

Starfaflokkun

Til þess að einfalda viðskiptavinum flokkun á jafnverðmætum störfum fyrir jafnlaunavottunina er hægt að skrá Logib flokkunina, ábyrgð, hæfniskröfur og menntun/reynslu, inn á stöður í Kjarna. 

Viðhald á stöðum fer fram undir Kjarni > Stofnskrár > Stöður. Á stöðunum er flipinn Jafnlaunavottun þar sem hægt er að skrá Logib flokkun viðkomandi stöðu. 

Þegar verið er að flokka margar stöður í einu getur verið gott að skrá Logib flokkunina á stöðurnar í gegnum Select lista. 

Listana á bakvið hvern flokk fyrir sig, þ.e. ábyrgð, hæfniskröfu og menntun/reynslu þarf hver viðskiptavinur að stofna og er það gert  undir Kjarni > Stofnskrár. Viðskiptavinir ákveða heiti flokkana og geta viðhaldið þeim þarna. 
Athugið að ábyrgðin á að vera á skalanum 1-5, hæfniskröfurnar á skalanum 1-4 og menntun/reynsla á skalanum 1-9, þar sem 1 er mesta ábyrgðin, hæfnin, menntunin/reynslan. 

Logib flokkunina getur einnig verið þægilegt að stofna og viðhalda í gegnum Select lista. 

Jafnlaunagreining BSI

Dálkalisti 

Setja þarf upp dálkalista fyrir jafnlaunavottunarskýrsluna. Ráðgjafar Origo geta aðstoðað við uppsetningu dálkalistans ef sendur er tölvupóstur á service@origo.is, en listinn á að innihalda þrá dálka 100% laun, bílastyrk og umbun.

Dálkalistinn er tengdur inn á skýrsluna Jafnlaunagreining BSI í Hliðarvali Kjarni > Skýrslur > Jafnlaunagreining BSI.

Skýrslan Jafnlaunagreining BSI

Skýrslan er aðgengileg í Hliðarvali Kjarni > Skýrslur > Jafnlaunagreining BSI og er hún uppsett eftir óskum starfsmanna BSI. Hún opnast á launamannanúmeri, kyni, fæðingarári, starfsaldri í fyrirtæki (námundað í ár), Ábyrgð, Hæfniskröfu og Menntun/reynslu. Þrír síðustu dálkarnir eru síðan sóttir í dálkalistann og sýna 100% laun, bílastyrk og umbun, eftir því hvaða launaliðir eru skráðir í dálkalistann.

Þessu til viðbótar er hægt að draga inn nokkur fleiri svæði sem aðstoða við innanhúss greiningu, sjá táknið "Velja dálka" 

LaunamannanúmerKynFæðingarárStarfsaldurÁbyrgðHæfniskrafaMenntun/reynsla100% launBílastyrkurUmbun










Stillingar fyrir jafnlaunagreingingu BSI

Eftirfarandi stillingar þarf að setja inn í Stillingar > Gildi tengt jafnlaunaskýrslu BSI. Ef óskað er eftir aðstoð við þessar stillingarnar frá ráðgjöfum Origo skal senda póst á service@origo.is. 

Heiti gildisKódi(valkvæmt)Gildi
EqualPayKjarakannanirEf sett sem "false" þá er valmöguleikinn í hliðarvalmynd óvirkjaður og falinn
EqualPay.PayListIDKjarakannanirVísir þess dálkalista sem nota á sjálfgefið í valskjá
EqualPay.OrgCompanyIDKjarakannanirVísir þess fyrirtækis sem nota á sjálfgefið í valskjá