/
Stofna nýtt launamannanúmer (starfsmaður í fleiri en einu starfi)

Stofna nýtt launamannanúmer (starfsmaður í fleiri en einu starfi)

Þegar stofna þarf nýtt launamannanúmer á starfsmann sem er t.d. í tveimur störfum er byrjað á að finna starfsmanninn í flipanum Starfsmenn

Tvísmellt á launamannanúmerið (nafn skipulagseiningar - launamannanúmer) þannig að spjaldið opnist.

Smellt á plúsinn í tækjaslánni, þá býr Kjarni til nýtt launamannanúmer. Setja þarf rétta dagsetningu í Gildir frá og að lokum er spjaldið vistað.

Til að nýja launamannanúmerið birtist er hægrismellt á nafnið í starfsmannatrénu og valið Birta hætta starfsmenn.

Þegar nýja launamannanúmerið er farið að birtast í starfsmannatrénu er hægt að fylla út í spjöldin sem tengjast launamanninum.

Ferillinn Stofna starfsmann

Einnig er hægt að stofna nýtt launamannanúmer í ferlinum Stofna starfsmann.

Þá er farið í Kjarni > Mannauður > Stofna starfsmann og byrjað á ferlinum og viðkomandi starfsmaður fundinn með því að fletta honum upp í reitnum Finna.

Svo er haldið áfram með ferilinn og í spjaldinu Launamannanúmer er valinn grænn plús fyrir nýtt launamannanúmer líkt og lýst var hér að ofan.

ATH. Velja þarf nýja launamannanúmerið og er þá hægt að halda áfram með ferilinn og stofna þau spjöld sem þarf fyrir nýja launamannanúmerið.