Réttindi starfsmanna í fæðingarorlofi

Forsendur fyrir því að starfsmenn vinni sér inn réttindi í Kjarna er að þeir fái greidd laun.
Ein eining af mánaðarlaunum gefur starfsmanni réttindi til :

  • orlofstöku
    • tímafjöldi fer eftir orlofsprósentu starfsmanns og vinnuskyldu á dag.
  • greiðslu orlofs uppbótar, 1/12 af upphæð uppbótar.
  • greislu desemberuppbótar, 1/12 af upphæð uppbótar.

Hlutfölluð mánaðarlaun gefa hlutfölluð réttindi.
Fyrir kemur að starfsmenn eiga að vinna sér inn réttindi í launlausri fjarveru.
Í þeim tilfellum þurfum við að skrá safnfærslu inn í launaútborgun. Við notum safnfærslu launalið til þessa. 

  • 8000 Réttindasöfnun
    • Þessi liður er notaður til að safna réttindum til greiðslu á orlofs- og desember uppbótum.
    • Þessi liður er líka notaður til að safna orlofstímum en þá þarf að skrá á hann reikni 200 í flipanum reikningur.
    • Þessi liður er skráður í fasta liði starfsmanns á það tímabil sem við á.
    • Skráð eining er í samræmi við starfshlutfall starfsmanns, ef 100% þá 1 eining, ef 50% þá 0,5 einingar osfrv.
    • Ef starfsmaður er launalaus hluta úr mánuði, en á samt að safna fullum réttindum er þessi liður handskráður í útborgun á það hlutfall sem vantar uppá rétt starfshlutfall.
    • Þessi liður gefur einungis þessi réttindi ef hann er með í launaútborgun og vistaður í áramótastöðu starfsmanns.
    • Ef starfsmaður á að ávinna sér starfsladur í launalausri fjarveru þá þarf að setja reikni 700 á launaliðinn undir flipanum reikningur.