Auglýsingasvör – listi yfir svör umsækjenda

Í listanum auglýsingasvör má finna lista yfir alla umsækjendur tiltekinnar auglýsingar. Listinn er aðgengilegur í gegnum listann auglýsingar og á upphafsvalmynd viðkomandi auglýsingar. Einnig er listinn Auglýsingasvör í hliðarvalmynd.

Til að opna listann er viðkomandi auglýsing valin og smellt á hnappinn Auglýsingasvör í tækjastikunni eins og sýnt er á myndinni hér til hliðar.

Í listanum Auglýsingasvör má nálgast allar helstu upplýsingar þeirra umsækjenda sem sótt hafa um viðkomandi auglýsingu. Listann má vinna með eins og aðra lista í Kjarna. Hægt er að taka hann út í Excel, velja inn ný svæði, endurraða svæðum o.s.frv. 

Aftast í listanum Auglýsingasvör birtast svör við þeim skimunarspurningum sem eru í auglýsingunni.


Til að sjá frekari upplýsingar um umsókn eða umsækjanda er viðkomandi umsækjandi valinn í listanum og tvísmellt er á línuna. Þá opnast yfirlitssíða umsóknar.