Vista viðhengi á umsækjanda

 

Almennt senda umsækjendur viðhengi sjálfir með umsókn sinni í gegnum umsóknarvef. Það getur þó komið til að það þurfi að handtengja viðhengi á umsækjanda í Kjarna. 
Það er gert í gegnum Heildaryfirlit umsækjanda. Heildaryfirlitið er m.a. hægt að nálgast í gegnum listann Umsækjendur.

Smellt er á Stofna hnappinn í tækjastikunni til að bæta við skjali.

 

Til að bæta við skjali er valið punktana þrjá og skjalið valið sem á að hengja á umsækjandann.

 

Það fyllist sjálfkrafa út í Heiti skjals.

Undir Tegund skjals er valið hvaða tegund þetta skjal er.

Hægt er að skrá frekari lýsingu á skjali undir Lýsing.

 

Ef hengja á skjal á Umsókn en ekki Umsækjanda þarf að velja Umsókn undir Eigandi skjals.

Í dálknum Númer eiganda þarf svo að velja á hvaða umsókn á að hengja þetta skjal á með því að velja punktana þrjá og velja þá auglýsingu í listanum sem þetta skjal tilheyrir.