Námskeiðstré


Undir námskeiðstré er listi yfir öll virk námskeið, flokkuð eftir námskeiðsflokkum. Námskeið birtast í námskeiðstrénu á meðan þau eru virk en eftir það er hægt að nálgast þau í námskeiðaslistanum sem aðgengilegur er í hliðarvalmynd. Námskeið teljast sem virk námskeið fram að lokadegi námskeiðsins.

Ef tvísmellt er á námskeið í námskeiðstrénu opnast upplýsingar um viðkomandi námskeið þar sem m.a. er hægt að viðhalda upplýsingum um námskeiðið, bæta við þátttakendum og breyta stöðu.