Stofna námskeið

Þegar smellt er á stofna námskeið opnast skráningarspjald námskeiðs. Þar inni eru skráðar allar upplýsingar um námskeiðið sem á að stofna. 


Glugginn sem opnast skiptist í fjóra flipa, Stofngögn, Tími og markhópar, Þátttakendur og Viðbótarspurningar.


Stofngögn

Undir stofngögn eru skráðar inn helstu upplýsingar um námskeiðið.

  • Ef stofna á námskeið frá grunni (ef það hefur ekki verið haldið áður) er nafn námskeiðs handslegið inn og námskeiðsflokkur og tegund námskeiðs valið með því að smella á punktalínuna. Ef að námskeið hefur verið haldið áður og nýta á þá skráningu sem hefur þegar verið skráð í kerfið er smellt á Sækja sniðmát og námskeiðið fundið í listanum sem þá kemur upp.

    Kerfið sækir þá námskeiðsflokkinn, tegund námskeiðs, leiðbeinendur og lýsingu. Hægt er að yfirskrifa þessar upplýsingar á nýja námskeiðið án þess að það hafi áhrif á fyrri námskeið.

  • Hægt er að handslá inn heildarkostnað námskeiðs í þetta spjald.

  • Ef birta á námskeiðið á námskeiðsvef fyrirtækis, þar sem starfsmönnum gefst kostur á að skrá sig og afskrá er sett hak í Birta á starfsmannavef.

  • Ef að leiðbeinandi er starfsmaður fyrirtækisins er hægt að velja hann úr starfsmannalista með því að smella á punktalínuna fyrir aftan Innri leiðbeinandi. Ef að leiðbeinandi er ytri aðili er nafn hans handslegið í textagluggann Ytri leiðbeinandi.

  • Hægt er að skrá punkta sem námskeiðið gefur í svæðið Punktafjöldi

  • Hægt er að hafa mismunandi skráningar- og afskráningarfrest fyrir námskeið. Grunnstillingar eru þannig að skráning og afskráning er leyfð þar til námskeið hefst en hægt er að setja inn stillingar í Stillingar > Gildi þar sem tilgreint er hver gildin eiga að vera sem þá birtast þegar námskeið er stofnað. Hægt er svo að yfirskrifa þessi gildi fyrir hvert námskeið fyrir sig ef skráningar- /afskráningarfrestur á að vera annar fyrir stök námskeið. 

  • Upphafsdagur, lokadagur, fjöldi daga, fjöldi vikna, fjöldi þátttakenda og fjöldi á biðlista birtast hér en eru skráð í aðra flipa spjaldsins.

  • Neðst í spjaldið er lýsing námskeiðsins skráð inn. Það sem skráð er hér birtist undir námskeiðinu á námskeiðsvef fyrirtækis ef valið er að birta námskeið þar.


Í hliðarglugganum er hægt að velja inn ábyrgðarmann námskeiðs úr starfsmannaskrá fyrirtækisins. Þar er einnig hægt að setja inn upplýsingar um þá hæfni og réttindi sem námskeiðið veitir.

Þegar námskeiðið er staðfest flytjast réttindi og hæfni sem fylgdu námskeiðinu í viðeigandi spjöld þátttakenda.

Dæmi: Námskeiðið Skyndihjálp veitir réttindin Skyndihjálp. Þeir starfsmenn sem ljúka námskeiðinu fá skráð á sig réttindi Skyndihjálp um leið og námskeiðið er staðfest í fræðsluhluta kerfisins.

Tími og markhópar

Hér eru settar inn upplýsingar um tímasetningar, staðsetningar og markhópa námskeiðsins.

Tími og staðsetning: Til að setja inn tímasetningar er ýtt á græna plúsinn. Ef námskeiðið er haldið yfir nokkra daga þarf að setja færslu fyrir hvern dag sem námskeiðið er haldið.

Markhópar: Til að velja inn markhópa er smellt á græna plúsinn. Nánari upplýsingar um markhópa má sjá hér.




Þátttakendur

Í þátttakenda flipanum er settar inn upplýsingar um lágmarks- og hámarksfjölda þátttakenda. Sjálfgefin hámarksfjöldi þátttakenda er 15 þegar námskeið er stofnað en hægt er að skilgreina annan sjálfgefin fjölda með stillingu.

Í þátttakendaflipanum er einnig hægt að handskrá inn þátttakendur með því að velja þá úr starfsmannalista (með því að smella á græna plúsinn) eða með því að slá inn hluta af kennitölu, nafni eða starfsmannanúmeri. Auk þess er hægt að leita eftir ákveðnu fyrirtæki, ákveðinni skipulagseiningu eða ákveðinni stöðu og skrá alla í einu sem tilheyra þeim leitarskilyrðum.

Ef leitað er eftir nafni starfsmanns þá birtast allir starfsmenn óháð ráðningarmerkingu en ef leitað er eftir fyrirtæki, skipulagseiningu eða stöðu birtast bara virkir starfsmenn (með ráðningarmerkinguna 'Í starfi').

Ef að þátttakendur verða fleiri en hámarksfjöldi þátttakenda fara þeir á biðlista.

Ef að þátttakandi afskráir sig af námskeiði þar sem er biðlisti breytist þátttakandinn sem er efstur á biðlista sjálfkrafa í skráðan þátttakanda.

Þeir þátttakendur sem eru með þátttökustöðuna Skráður fá fundarboð þegar námskeiðið er vistað eða þegar starfsmaður skráir sig á námskeið í gegnum starfsmannavefinn. Ef þátttakandi afskráir sig fær hann afbókun á fundarboðið og sá þátttakandi sem er efstur á biðlista fær þátttökustöðuna Skráður og fær fundarboð sent.

Ef í einhverjum tilfellum sendist ekki fundarboð á þátttakendur er hægt að triggera sendingu fundarboða með því að keyra skipun CourseMeetingRequest.Send.[CourseID] þar sem CourseID er númer þess námskeiðs sem senda á fundarboðið fyrir.


Viðbótarspurningar

Viðbótarspurningar eru ætlaðar ef spyrja á spurninga þegar þátttakandi skráir sig á námskeið/viðburð. Til dæmis ef verið er að skrá sig á árshátíð er hægt að spyrja viðkomandi hvort maki komi með. Spurningarnar birtast á starfsmannavefnum eftir að starfsmaður hefur valið að skrá sig á námskeið/viðburð.

Svörin við viðbótaspurningunum er svo hægt að birta í í listanum Svör viðbótarspurninga í hliðarvalmynd.