Innlestur gjaldheimtugjalda

Innlestur gjaldheimtugjalda á sér stað á sama stað og bunkainnlestur, undir innlestur í launahringnum. 

 
Til að lesa inn skrá með gjaldheimtugjöldum er smellt á lesa gjöld. Það opnast gluggi þar sem skráin er sótt og frekari upplýsingar um gjöldin slegin inn. 

Lesa

Lesa: Lesa inn nýja skrá, aðsent skjal eða eigið skjal

Eins og í bunkainnlestrinum er skráin sótt með því að smella á punktalínuna. Nauðsynlegt er að setja skýringu í þar til gerðan reit. 
Velja þarf kröfugerð hvort um er að ræða einn gjalddaga eða 5 gjalddaga.

Hægt að velja tegund, hvort þetta sé eingreiðsla, föst greiðsla eða dreifð greiðsla.

Gjaldheimta nr: Valið er svo númer innheimtuaðila (getur verið mismunandi eftir fyrirtækjum)

Skráist á launlið nr: Launaliðanúmer gjaldheimtugjaldana.

Tegund: Algengast er að þetta sé eingreiðsla en þó mismunandi.

Þegar verið er að lesa inn opinber gjöld/eftirágreidda skatta verður alltaf að nota tegundina eingreiðsla.

Þegar smellt er á lesa opnast listi yfir aðgerðarsögu sem má loka. 

Ef að einhver villa eða athugasemd er í innlestrinum þá birtist hún í aðgerðarsögunni.


Þá birtist listi yfir þær kröfur sem á að lesa inn. Hér er hægt að fara inn í listann og breyta ef þess þarf.

ATH! Muna að vista þá breytingu sem gerð er á listanum - smella á diskettu í tækjaslá !!


Ef skráin inniheldur kennitölu starfsmanns sem er hætur þá kemur hann fram í bunkanum en línan flyst ekki í gjaldaspjald.

Til að flytja skráninguna yfir í launaskráningu þarf að velja táknið „Flytja gjaldheimtugjöld frá bunka í spjöld" Þá opnast þessi gluggi þar er smellt á Flytja. 
Athugasemd kemur neðst í hægra horni um hvort innlestur tókst eða ekki. 

Í athugasemdinni segir hversu margar færslur voru í bunkanum og hversu margar voru lesnar inn. Í þessu dæmi voru 2 færslur í bunka sem voru fluttar í gjaldheimtuspjöld viðkomandi starfsmanna. Reikna þarf launin til að fá gjöldin inn í launaútreikning.

Skoða

Skoða: Þegar smellt er á skoða opnast listi yfir skrár sem þegar er búið að lesa inn eða færslur sem hafa verið skráðar í kerfið. Ef tvísmellt er á línuna opnast Gjaldheimtugjalda spjald viðkomandi starfsmanns

Eyða

Eyða: Hægt er að eyða bunkafærslum í gjaldheimtugjöldum með því að smella á eyða hnappinn. Þá opnast valgluggi þar sem forsendur eru slegnar inn og aðgerðin kláruð með því að ýta á eyða.


Athugið að hægt er að eyða eldri gjaldainnlestri með einni aðgerð. Sú aðgerð er í Hliðarvali > Kjarni > Laun > Aðagerðir > Breyta / Eyða gjöldum.

75 %reglan

75% reglan fyrir opinber gjöld er svona í Kjarna :  ( heildarlaun * 75% ) -  ( meðlag + iðgjald í almennan sjóð + greidd staðgreiðsla ),   

Fyrst er reiknað 75% af heildarlaunum. Síðan er meðlag, iðgjald í almennan lífeyrissjóð og greidd staðgreiðsla lögð saman. Að lokum er frádrátturinn dreginn frá 75% launum og gefur sú tala það hámark sem nota má til frádráttar opinberra gjalda.