Leiðrétta laun afturvirkt
| Þegar breyting er gerð á launum stafsmanns (vegna launahækkunar, breytingar á launasamsetningu eða aðrar breytingar) sem eiga að gilda afturvirkt er notuð aðgerðin Leiðrétta laun. Aðgerðin er notuð þegar gera þarf launabreytingar aftur í tímann, hvort heldur sem er vegna persónubundinna launahækkana eða þegar breytingar verða á kjarasamningum. Aðgerðina er einnig hægt að nota til að leiðrétta fjáhæðir sem eru yfirskrifaðar í föstum liðum hvort sem taxti er yfirskifaður í svæði eða ný lína stofnuð. Við slíka leiðréttingu er unnið með svæðið “Launatöfluhækkun” í aðgerðinni. Hægt er að komast í aðgerðina í gegnum hliðarvalmynd launa og líka beint úr launaskráningu. Þegar laun eru leiðrétt fyrir staka starfsmenn, mælum við með því að það sé gert beint úr launaskráningunni. Aðgerðin er í aðgerðahjóli í neðri tækjaslánni, í skráningarglugganum sjálfum, sjá mynd. Þegar laun eru leiðrétt fyrir stóran hóp starfsmanna, t.d. kjarasamning, mælum við með því að fara í hliðarval Kjarni > Laun > Leiðrétta laun |
| Ef verið er að gera persónubundna hækkun þarf að breyta grunnlaunaspjaldi starfsmanns. Þegar breytingar eru gerðar vegna kjarasamningshækkana þarf fyrst að gera breytingu á viðeigandi samningi. Dæmi um persónubundna hækkun: Starfsmaður fer úr launaþrepi 1 í launaþrep 2 frá 1.september. Grunnlaunaspjald starfsmanns er opnað og gild færsla valin í töflu á hægri hlið. Smellt á táknið „Afrita". Nýju færslunni gefin dagsetning 1.9.2024 og þrepi breytt úr 1 í 2 og dagsetningin gildir frá er sett 1.9.2024. Spjaldið vistað með diskettunni.
Þegar búið er að gera viðeigandi breytingar er smellt á hnappinn leiðrétta laun í hliðarvalmynd launa. Þá opnast valgluggi launaleiðréttingar. |
| Skilyrði; Hægt er að leiðrétta laun fyrir fleiri en eina útborgun aftur í tímann. Ef ekkert er valið skoðar kerfið allar útborganir sem við á út frá kjarasamningum eða grunnlaunaspjaldi. Launamaður; Ef um persónubundna breytingu er að ræða (ekki skv. kjarasamningi) þá er starfsmaður valinn hér. Annars er línan auð. Samningur; Hægt er að velja þann samning sem breyttist. Ef línan er auð finnur Kjarni alla samninga sem breyst hafa.
|
| Niðurstaða; Hér eru settar inn upplýsingar í hvaða útborgun leiðréttingin á að koma.
|
| Aðgerð; Hakað er við hverskonar breytingu er um að ræða. Ef um persónubundna breytingu er að ræða þarf að setja hak við „Breytt um samning, launaflokk, þrep eða álag". Einungis er hægt að vera með eitt hak valið. |
| Þegar búið er að ýta á Leiðrétta opnast aðgerðasögu gluggi, með því að tvísmella á línuna er hægt að skoða færslur, breyta eða eyða leiðréttingarfærslum hjá hverjum og einum launamanni. Ef hakað var við Sýna leiðréttingarfærslur þá kemur upp listi yfir allar breytingar. Þessi listi er breytingarlisti, þannig að hér er hægt að eyða út færslum á þægilegan hátt eða breyta færslum ef þörf er á. |
| Ef launaskráningar glugginn var opinn meðan á aðgerð stóð þarf að fríska gluggann til að fá leiðréttinguna til að birtast í skráningarmyndinni. |