4. Vefskil staðgreiðslu

 

 

Veflykil þarf fyrir hvert fyrirtæki fyrir sig. Veflykillinn er skráður í flipann Stillingar og þar í Gildi. Það er mikið af gögnum hér inni, svo best er að draga svæðið Kódi upp fyrir listann og finna þarf Vefskil.

 

 

Smellt er á plúsinn fyrir framan Kódi: Vefskil og þar er veflykilinn skráður í svæðið Gildi. Nafn skipunar er Xap.Rsk.Veflykill.1 þar sem númerið vísar til númers fyrirtækis. Ef um mörg fyrirtæki er að ræða, þá þarf að skrá þessa skipun fyrir hvert fyrirtæki með réttu númeri og skrá veflykilinn fyrir hvert fyrirtæki í svæðið Gildi.

ATH! það þarf einnig að skrá inn netfang í stofnupplýsingar fyrirtækis í Póstfang. Þetta netfang er sent með vefskilum staðgreiðslu til RSK.

 

Til að skila staðgreiðslu með vefskilum er smellt á Skila í launahringnum.

 

Þar er hægrismellt á staðgreiðslu skilagreinina og valið Senda með vefskilum.

 

Þá kemur upp valgluggi þar sem allar útborganir sem tilheyra sama skilagreinamánuði og valin útborgun koma sjálfkrafa inn. Þegar smellt er á „sækja" birtist skilagreinin á skjánum áður en hún er send. 

 

Byrjað er á að villuprófa skilagreinina.

Ef eitthvað er athugavert er smellt á hnappinn Hætta við og er þá skilagreininni lokað og engin sending á sér stað.
Ef allt er í lagi, er smellt á hnappinn Senda til RSK. Skilagrein er lokað og í staðinn birt móttöku kvittun, merkt XML-svar. 

 

 

Til að prenta út móttöku kvittunina frá RSK er hægri smellt á kvittunina og valið "prenta".

 

Ef skilagildi er -1 er ekki hægt að skila vegna villu. Helstu villumeldingar eru eftirfarandi:

 

  • Ríkisskattstjóri athugar hvort búið sé að skila skilagrein fyrir valið tímabil. Ef reynt er að senda aftur fyrir sama tímabil, þá kemur eftirfarandi villumelding: Athugið. Ekki hægt að skila inn eins skilagrein tvisvar.

  • Ríkisskattstjóri athugar hvort kennitölur séu gildar. Ef reynt er að senda vegna ógildrar kennitölu, þá kemur eftirfarandi villumelding Kennitala 2209774222. Lína 249. Kennitala stenst ekki vartölupróf.

  • Ríkisskattstjóri leyfir ekki skil á mínusstaðgreiðslu umfram greidda staðgreiðslu á árinu.

  • Ríkisskattstjóri leyfir ekki mínus í lífeyrissjóði. Ef það hendir, þá kemur eftirfarandi villumelding: Kennitala XXXX-XXXX myndar mínus gildi í staðgreiðslu ársins 20xx mynda mínus gildi - skilagrein hafnað