Ráðningar á vef 21.2.1

Auglýsingar Töflusýn - Dagsetningar

APPAIL-7387

Undir töflusýn auglýsinga (lista sjónarhorni) birtast núna nýjustu auglýsingar efst. Þær auglýsingar sem eru með endadagsetningu lengst fram í tímann birtast efst.

Auglýsingar Töflusýn - Síur

APPAIL-7389

Nú haldast síur á stöðu auglýsingar inni þegar smellt er á auglýsingu og farið svo til baka.

Auglýsingar og úrvinnsla - Stöðuborð

APPAIL-7386

Nú er skrollstikan (Scroll bar) alltaf sýnilegt neðst á skjánum í sjónarhorni stöðuborðs við úrvinnslu umsókna.

Auglýsingar - Stofnun/breyting á auglýsingatexta.

APPAIL-7511

Þegar kóperaður var texti frá Word inn í stofnspjald auglýsingar þá var nær ómögulegt að breyta/lagfæra textann þegar farið var inn í auglýsinguna síðar til að uppfæra. Þetta hefur nú verið lagað.

Onboarding - launahópur

APPAIL-7402

Bætt hefur verið við þeim möguleika á að velja inn launahóp í onboarding ferlinu.

Onboarding - Nokkrar breytingar

APPAIL-7469

Þessar breytingar voru gerðar í onboardingferlinu; Ráðningarmerking kemur núna default Í starfi og ekki hægt að breyta, Tegund ráðningar kemur default sem Reynsluráðning en hægt að breyta, textanum Skattprósenta var breytt í Persónuafsláttur.

Onboarding - Lagfæring

APPAIL-7456

Þegar starfsmaður var stofnaður í gegnum onboardingferlið á vefnum þá var nafn og kennitala viðkomandi ekki að birtast í spjaldinu Launamaður í Kjarna og keyra þurfti skipunina Lookup.ClearAll inn í Kjarna til þess að fá þetta inn í spjaldið. Þetta hefur nú verið lagað.

Onboarding - Orlof

APPAIL-7460

Þegar starfsmaður var stofnaður í gegnum onboardingferlið á vefnum var fjöldi orlofsdaga ekki að birtast í yfirlitinu (skref fjögur í onboardingferlinu). Þetta hefur nú verið lagað.

Onboarding - Notandanafn

APPAIL-7505

Þegar starfsmaður var stofnaður í gegnum onboardingferlið á vefnum og slegið var inn notandanafn í því ferli þá kom ekki upp villumelding ef notandanafnið var nú þegar skráð á annan starfsmann. Þetta hefur nú verið lagað.

Onboarding - Starfsmaður í tímaskráningakerfi.

APPAIL-7510

Þeim möguleika hefur verið bætt við (fyrir þá viðskiptavini sem eru með tengingu við tímaskráningakerfi) að starfsmenn flytjist í tímaskráningakerfi séu þeir ráðnir í gegnum onboarding á vefnum. Til þess að fá þennan möguleika inn þarf að setja inn stillinguna Kjarni.Web.Show.Onboarding.TimeManagementSystem á true. Þessi stilling er sett inn undir Stillingar > Vefgildi.

Umsækjendur - Stofnað þann

APPAIL-7404

Undir listanum Umsækjendur var bætt við dálkinum Stofnað þann undir Stillingar.

Auglýsingar Stöðuborð - Stöður auglýsinga

APPAIL-7390

Nú er hægt að velja inn þær stöður auglýsinga sem notandi vill vinna með hverju sinni.

Auglýsingar og úrvinnsla - Umsóknir og svör (lista sjónarhorn)

APPAIL-7414

Menntun umsækjanda var ekki að birtast í lista sjónarhorni ef hún var ekki merkt sem Hæsta. Þessu hefur nú verið breytt þannig að nýjasta menntun sem hefur verið lokið birtist í listanum þrátt fyrir að hún sé ekki merkt sem hæsta menntunarstig.

Auglýsingar og úrvinnsla - Umsóknir og svör (lista sjónarhorn)

APPAIL-7461

Bætt var við svæðunum Starfsheiti og Vinnuveitandi í lista sjónarhorn við úrvinnslu umsókna.

Stofngögn fyrir ráðningar

APPAIL-7354

APPAIL-7438

Bætt hefur verið við flipanum Ráðningar - Stofngögn undir Ráðningarferli á Kjarna vef. Þau stofngögn sem eru komin þar inn eru; Staða umsóknar, Röðun, Staða auglýsinga, Flokkun auglýsinga og Bréf.

Úrvinnsla umsókna- Umsóknar - og umsækjandaröðun

APPAIL-7470

Nú er hægt að láta umsóknar - og umsækjandaröðun birtast sem fellilista í stað þumla og stjarna. Til að fá inn þessa birtingarmynd þarf að setja inn stillinguna Kjarni.Web.Recruiting.Ranking.DropDown á true í Stillingar > Vefgildi.

Úrvinnsla umsókna- Villuboð

APPAIL-7468

Þegar reynt var að opna Word skjöl umsækjanda með auganu og svo farið til baka þá var að koma upp React Error villuboð. Þetta hefur nú verið lagað.