Header/Footer á útprentaða lista
Hægt er að setja í stillingar upplýsingar sem birta á í header/footer á útprentuðum listum í Kjarna. Það er stillingaratriði hvort upplýsingarnar eigi að birtast í vinstra horni, hægra horni eða miðju í header/footer. Stillingarnar eru settar inn í Stillingar > Gildi í kerfisvalmynd Kjarna.
Eftirfarandi eru stillingarnar sem setja þarf inn eftir því hvar upplýsingarnar eiga að birtast. Þessar upplýsingar eru skráðar í svæðið Nafn í Stillingar > Gildi.
- Print.Header.Left
- Print.Header.Center
- Print.Header.Right
- Print.Footer.Left
- Print.Footer.Center
- Print.Footer.Right
Og eftirfarandi eru breyturnar sem hægt er að birta í header/footer. Þessar breytur eru skráðar í svæðið Gildi í Stillingar > Gildi og eru skráðar innan []. Hægt er að telja upp fleiri en eina breytu með kommu á milli auk þess sem hægt er að skrá inn fyrirsögn t.d. Tími: fyrir framan viðkomandi breytu til skýringar. Sjá nánar á skjámynd.
- [Title]
- [Page #]
- [Page #] / [Pages #]
- [Page # of Pages #]
- [User Name]
- [Date Printed]
- [Time Printed]
- Fjáls texti