1. Undirbúningur og stillingar

Undirbúningur er mjög oft unninn í samvinnu launafulltrúa, mannauðsstjóra og fjármálastjóra.

Ákveða þarf og breyta í Kjarna til samræmis, skráning fram í tímann eftir því sem við á:

  1. Eru fyrirhugaðar skipulagsbreytingar?
  2. Eru kjarasamningshækkanir þekktar?
  3. Er áætlað launaskrið?
  4. Er vitað um persónubundnar launahækkanir?
  5. Keyra aldurshækkanir launa.
  6. Keyra orlofsflokkahækkanir.
  7. Stofna skatthlutföll fyrir næsta ár, svo tryggingagjald reiknist.

Áður en áætlun er unnin þarf að skrá allar þekktar starfsmanna- og launabreytingar inn í kerfið. Launabreytingar geta bæði verið persónu- og kjarasamningsbundnar. 

Þekktar persónubundnar breytingar tengdar kjarasamningum (t.d. umsamin þrepahækkun)

Ef að starfsmaður á að fá persónubundna hækkun á árinu sem verið er að áætla fyrir og það liggur fyrir hvenær sú hækkun kemur til framkvæmda og hversu mikil hún á að vera eru upplýsingar um það settar inn í grunnlaunaspjald viðkomandi starfsmanns.

Í dæminu hér til hliðar er verið að áætla fyrir árið 2017 og það liggur fyrir að frá og með 1. apríl það ár á starfsmaður að hækka um eitt launaþrep.


Þekktar eða áætlaðar kjarasamningsbundar hækkanir

Áður en byrjað er að vinna áætlun þarf að tryggja að búið sé að skrá inn kjarasamningshækkanir fyrir áætlunar ár. Breytingar og hækkanir á launatöflu eru framkvæmdar í listanum Launatöflur í hliðarvalmynd launakerfisins.

Nánari upplýsingar um hækkanir: Hækka launatöflur. Þegar sett er inn hækkun á samning þarf að gæta þess að velja tegundina "Áætlun". Ef tafla er merkt þannig tekur launaskráning ekki mið af henni, heldur aðeins launaáætlun.

Reikniliðir í áætlun

Ef nota á reikniliði í launaáætlun þá þarf að vera til launatafla á samningi núll sem er af tegundinni "Áætlun" ef launatafla samnings launamanns er af tegundinni "Áætlun".

Breytingar á hlutföllum og föstum

Tryggja þarf að allar þekktar breytingar á hlutföllum og föstum fyrir áætlunar ár séu skráðar í kerfið. Ef það liggur fyrir hækkun á orlofs- og desemberuppbót á áætlunar ári þarf að vera búið að setja réttar upphæðir inn á viðeigandi dagsetningum.

Breytingarnar eru settar inn í listanum launatöflur í hliðarvalmynd launa.

Þekktar starfsmannabreytingar

Áður en áætlun er unnin þarf að færa inn allar þekktar breytingar á ráðningarsambandi starfsmanns í spjaldið Tenging innan fyrirtækis. Í dæminu hér til hliðar er starfsmaður að láta af störfum vegna aldurs um mitt ár 2017 og ekki á að ráða nýjan starfsmann í staðinn fyrir viðkomandi. Svo að kerfið áætli aðeins laun fyrir viðkomandi starfsmann fram að starfslokadegi þarf einnig að vera búið að setja lokadagsetningu á Grunnlaunaspjaldið. 

Annað dæmi gæti verið starfsmaður sem vitað er að muni skipta um deild/kostnaðarstöð um mitt ár. Í slíku tilviki þarf að útbúa nýja færslu fyrir viðkomandi frá þeim degi sem breytingin á að eiga sér stað. Kerfið mun þá áætla laun fyrir starfsmanninn á núverandi kostnaðarstöð fram á mitt ár og á nýju kostnaðarstöðinni frá miðju ári.



Skatthlutföll

Setja þarf inn skatthlutföll fyrir næstkomandi ár. Þar sem skattaprósentur ligga ekki fyrir þegar áætlun er framkvæmd þarf að setja inn sömu skatthlutföll og fyrir núverandi ár. Því er síðan breytt þegar gefin hafa verið út hlutföll fyrir næsta ár. Nánari upplýsingar um það má finna hér.