Ráðningar á vef 21.3.1

Stilling til að fela Stofngögn undir Ráðningar í hliðarvalmynd

APPAIL-7610

Bætt hefur verið við stillingu þar sem núna er hægt að fela Stofngögn undir Ráðningar í hliðarvalmynd fyrir ákveðnum hlutverkum. Ef óskað er eftir að fá þessa breytingu inn skal senda beiðni á service@origo.is

Onboarding - Nýtt svæði

APPAIL-7512

Bætt hefur verið við svæðinu Sent dags í listanum Tilbúnir til ráðningar. Þessi dagsetning segir til um hvenær óskað var eftir gögnum frá umsækjanda sem á að ráða.

Onboarding - starfsmaður stofnast í tímaskráningarkerfi

APPAIL-7682

Þegar starfsmaður var stofnaður í Onboarding var hann ekki að stofnast í tímaskráningarkerfi. Þetta hefur verið lagað. Athugið að það þarf að vera kveikt á því að starfsmaður sé stofnaður í tímaskráningarkerfi þegar ráðið er í gegnum Onboarding (hak fyrir tímaskráningarkerfi kemur í skrefinu fyrir Tenging innan fyrirtækis). Ef þið þurfið upplýsingar um hvort þessi tenging sé til staðar eða láta kveikja á þessu vinsamlegast sendið á service@origo.is

Úrvinnsla umsókna - Breyting texta í bréfum

APPAIL-7613

Þegar sniðmát voru valin inn við sendingu bréfa var ekki hægt að eiga við textann ef að sniðmátin innihéldu netföng og/eða vefslóðir. Þetta hefur nú verið lagað.

Úrvinnsla umsókna - Umsóknir og svör - Breyting á síu

APPAIL-7633

Þegar auglýsing var með spurningu þar sem hægt var að velja mörg svör og umsækjandi hafði hakað við fleiri en einn möguleika þá komu þessir möguleikar ekki upp í síunni í listanum Umsóknir og svör. Þetta hefur nú verið lagað.

Stofngögn - Bréf

APPAIL-7617

Bætt var við virkni undir Stofngögn > Bréf þannig að nú er hægt að setja inn texta í bréfið og þar með fullklára stofnun þess.