Kjarni vefur 21.4.1
Fræðslubeiðni ef bara skráð í persónulegt netfang
Ef starfsmaður er bara með skráð netfang í persónulegt netfang þá var svar yfirmanns við fræðslubeiðninni ekki að fara í gegn. Þetta hefur verið lagað.
Ráðningar á vef - Umsækjendur - Eyða umsækjendum sem eiga ekki umsóknir
Undir Ráðningarferli > Umsækjendur var bætt við þeim möguleika að eyða út umsækjendum sem eru ekki með neinar umsóknir á sér.
Ráðningar á vef - Auglýsingar og úrvinnsla - Umsóknir og svör
Undir Ráðningarferli > Auglýsingar og úrvinnsla - Umsóknir og svör og smellt var á umsækjanda t.d. á síðu 4 (í þeim tilfellum sem eru margar umsóknir og síðurnar því margar) og síðan smellt á til baka þá fór kerfið aftur á síðu nr. 1 í stað þess að vera áfram á síðu nr. 4. Þetta hefur nú verið lagað.
Ráðningar á vef - Umsóknarröðun uppfærð á umsækjanda en uppfærðist ekki í umsóknarlista nema fríska listann
Þegar umsóknarröðun var uppfærð á umsækjanda uppfærðist staðan ekki í umsóknarlistanum fyrr en listinn var frískaður. Þetta hefur verið lagað.
Ráðningar á vef - Umsækjendalisti - Stofnað þann tómt þegar listi er fluttur í excel
Þegar umsækjendalistinn var fluttur yfir í excel var dálkurinn Stofnað þann að koma tómur. Þetta hefur verið lagað.
Onboarding - stofna aðra færslu fyrir Tenging innan fyrirtækis
Núna er möguleiki að stofna aðra færslu fyrir Tenging innan fyrirtækis spjaldið í Onboarding ferlinu.
Onboarding - Reiknihópur bætt við skrefið Grunnlaun
Svæðinu Reiknihópur hefur verið bætt við í skrefi 2, undir Grunnlaun í Onboarding ferlinu.
Rafrænar undirritanir - Tölvupóstur eftir að aðilar hafa undirritað skjal
Þegar aðilar hafa undirritað rafrænt skjal sendist tölvupóst á skilgreind netföng í Kjarna. Þessi tölvupóstur var ekki að skila sér og hefur verið lagað.
Mannauður - Starfsmannalisti - listi síaður
APPAIL-7545 / APPAIL-7824 / APPAIL-7827
Ef starfsmannalistinn var síaður á ákveðin gildi var fjöldinn ekki að koma rétt. Þetta hefur verið lagað.
Listinn var ekki að skila sér síaður í excel heldur kom heildar listinn. Þetta hefur verið lagað.
Val um að birta fleiri á síðu datt út þegar listinn var síaður. Þetta hefur verið lagað
Mannauður - Stofngögn
Hluti af stofngögnum fyrir Mannauð er komið á vefinn. Fleiri stofngögn munu koma með næstu útgáfum.
Launaáætlun á vef - samtölur eftir hópum
Bætt hefur verið í launaáætlun á vef samtölum fyrir kostnaðarstöðvar, skipulagseiningar og stöður eftir því hvaða hópur er valinn.
Launaáætlun á vef - upplýsingar í töflu þéttar
Þegar unnið er með launaáætlun á vef var taflan með færslum launþega að opnast full stór. Hún hefur nú verið þétt og dálkar jafnaðir.
Launasamþykkt á vef - skjölun um hver samþykkti og hvenær
Þegar búið er að samþykkja laun á vef er nú hægt að draga inn svæðin “Samþykkt af” og “Breytt” til að sjá hver samþykkti færslur og hvenær.
Þessar sömu upplýsingar koma fram við færslurnar í Kjarna client.