Almennt 21.5.1
Tenging við Alfreð ráðningarkerfi
Nú er hægt að tengja saman Alfreð og Kjarna þannig að þegar umsækjandi er ráðinn í gegnum ráðningarkerfi Alfreðs þá stofnist hann sjálfkrafa sem starfsmaður í Kjarna. Setja þarf upp tenginguna og svo eru mánaðargjöld af tengingunni. Ósk um nánari upplýsingar sendist á service@origo.is.
Starfsmannavefþjónusta með OData 4 stuðningi
Búið er að útbúa nýja starfsmannavefþjónustu með stuðningi við OData 4. Vinsamlegast sendið á service@origo.is ef þið óskið eftir frekari upplýsingum.
Svæðum bætt við í starfsmannavefþjónustu
Svæðunum Flokkun (FunctionCode/FunctionName), Svæði (AreaID/AreaName)og Undirsvæði (SubAreaID/SubAreaName) hefur verið bætt við starfsmannavefþjónusturnar.
Vefþjónusta með samandregnum launaupplýsingum per. kostnaðarstöð
Búið er að útbúa nýja vefþjónustu með samandregnum launaupplýsingum, per. kostnaðarstöð. Vinsamlegast sendið á service@origo.is ef þið óskið eftir frekari upplýsingum.
Nýtt svæði fyrir AD vörpun - Annað heiti fyrir skipulagseiningu sem er svið
Bætt hefur verið við Annað heiti á skipulagseiningu sem er svið í AD vörpun. Tækniheitið er OrgCompanyUnitDivisionAlternativeName.
Nýtt svæði fyrir AD vörpun - Farsími með landakóða án formats
Bætt hefur verið við Farsími með landakóða án formats í AD vörpun. Áður var bara í boði farsími með landakóða með formati sem var að skila símanúmerinu með bilum í AD. Tækniheitið er PhoneNumberMobileWithCountryCode.
Starfsmenn með tegund ráðningar Ytri aðili og flutningur yfir í AD
Starfsmenn með tegund ráðningar Ytri aðili voru ekki að flytjast yfir í AD. Þetta hefur verið lagað.
Token fyrir vefþjónustur
Líftími á Token-i fyrir vefþjónustur var styttur. Hann er núna 15 mínútur.