Viðvera 22.3.1

Skrá færslur á frídögum og heila/hálfa daga

APPAIL-8816 / APPAIL-8829

Bæði á Kjarna vef og starfsmannavef hefur verið bætt við virkni þar sem hægt er að velja að skrá færslur á frídögum (helgar annars vegar eða frídaga hins vegar) þegar verið er að skrá tímabil. Auk þess er núna hægt að velja heilan og hálfan dag þegar verið er að skrá tíma.

Starfsmenn í stafrófsröð þegar stofnuð er færsla

APPAIL-8642

Þegar stofnuð var færsla á starfsmenn á Kjarna vefnum voru starfsmenn ekki að koma í stafrófsröð. Þetta hefur verið lagað.

Flutningur á tímum í Excel

APPAIL-8621

Hægt er að flytja tíma starfsmanna á Kjarna vefnum yfir í Excel. Áður var einungis hægt að flytja bara samantekt starfsmanns yfir í Excel en núna er hægt að velja Færslur og fá allar færslur starfsmanna/starfsmanns.