Ráðningar 23.4.1

Ráðningarferli - svæði fyrir álag úr grunnlaunaspjaldi

APPAIL-10122

Núna er hægt að birta svæðin Símenntunarálag, Menntunarálag, Stjórnunarálag og Starfsþróunarálag úr grunnlaunaspjaldinu í ráðningarferlinu. Til að birta þessi svæði þarf að setja inn stillingu. Ef óskað er eftir að fá þetta inn skal senda beiðni á service@origo.is

Ferilskrá sýn getur núna birt word skjöl

APPAIL-10194

Í ferilskrá sýn var áður bara hægt að skoða skjöl sem voru á pdf formatti. Búið er að bæta við að núna er einnig hægt að skoða word skjöl í þessari sýn. Athugið að mögulega er takmörkun á viðhengjategundum í stillingu á Kjarna kerfinu (hvað viðhengjategundir umsækjandinn getur skilað inn) og gæti þurft að bæta word inn í þá stillingu. Ef þú hefur spurningar varðandi þetta þá þarf að senda beiðni á service@origo.is

Uppsetning á bréfi ekki að skila sé rétt þegar verið er að hafna umsækjanda

APPAIL-10466

Ef uppsetning á bréfi var miðjuð var það ekki að skila sér rétt á vefnum þegar bréfið var valið inn þegar verið er að hafna umsækjanda. Þetta hefur verið lagað.