Jafnlaunavottun - Yfir- og undirviðmið

Í hliðarvalmynd undir Kjarni > Stofnskrár eru aðgengilegar töflur fyrir yfir- og undirviðmið auk lista fyrir skráningu þrepa fyrir hvert undirviðmið á stöður. 

Jafnlaunavottun - Yfirviðmið

Yfirviðmiðin eru stofnuð fyrst með því að smella á græna plúsinn (viðskiptavinur ræður fjölda)

Jafnlaunavottun - Undirviðmið

Svo eru stofnuð undirviðmið fyrir hvert yfirviðmið og þau tengd á viðkomandi yfirviðmið (viðskiptavinur ræður fjölda).

Á hvert undirviðmið er svo skráð þrep. Viðskiptavinir geta sjálfir ráðið gildi hvers þreps fyrir hvert undirviðmið fyrir sig og þannig stýrt vægi viðmiða. 

Til að skrá inn þrepin - stofna nýja línu er farið í plúsinn neðst á myndinni. Í reitinn Þrep nr. er skráður sá stigafjöldi sem þrep á að gefa.

Þrepin eru síðan skráð á stöður og mynda þannig heildarstigatölu, verðmæti, stöðunnar.

Þrepin er annað hvort hægt að skrá inn á stöðu í gegnum viðhald stöðunnar, þ.e. Kjarni > Stofnskrár > Stöður, eða í gegnum lista sem inniheldur allar stöður, viðmið og þrep. Sá listi, Jafnlaunavottun - Viðmið - Stöður er einnig aðgengilegur í hliðarvalmynd undir Kjarni > Stofnskrár

Skráning þrepa á stöðu. Stigin í dálkaröðinni Þrep eru svo lögð saman og birtast í reitnum Viðmið heildarstig á stöðunni.

Skráning þrepa í gegnum listann Stofnskrár > Jafnlaunavottun - Viðmið - Stöður

Ef undirviðmið eru t.d. 14 þá fara 14 undirviðmið á hverja stöðu.



Athugið að það hægir á listanum að draga svæðið Þrep lýsing inn í listann. Án þess svæðis á hraðinn aftur á móti að vera fínn. 

Heildarstigatala hverrar stöðu er sýnileg á stöðunni auk þess sem hún er aðgengileg í jafnlaunavottunarlista.


Hægt er að birta persónubundin viðmið á Kjarnavef, sjá nánar hér