Innskráning og aðgangur að starfsmannavef

Innskráning

Tvær leiðir eru til að skrá sig inn á vefinn. Ef fyrirtæki eru með Single Sign On tengingu í kerfinu dugir að smella á Windows innskráning. Ef fyrirtæki eru ekki með slíka tengingu þarf að senda notanda notendanafn og lykilorð, eða nota sama notendanafn og lykilorð og það sem notað er til að skrá sig inn í Kjarna ef notendur eru að vinna í Kjarna.

Að veita aðgang að starfsmannavefnum

Allir starfsmenn þurfa að vera notendur í Kjarna og þurfa að fá sent aðgangsorð til að skrá sig inn á vefinn. Best er að hafa notandanafnið sama og windows notanda starfsmanns.

Upplýsingar um hvernig stofna á notanda í Kjarna er hægt að sjá hér: Stofna notanda og gleymt lykilorð

Einnig er hægt að stofna marga starfsmenn sem notendur í einu, sjá hér: Stofna marga notendur

ATH ef að fyrirtæki eru að nota Single sign on þarf ekki að senda starfsmönnum sérstakt lykilorð í Kjarna. 

Tenging milli notanda og starfsmanns

Til þess að starfsmaður geti skráð sig inn á starfsmannavefinn þarf að vera tenging til staðar á milli starfsmannsins og notanda hans. Er þessi tenging skráð í EmployeeXapUser.List. Myndast þessi tenging sjálfkrafa þegar notandi er stofnaður
Aftur á móti getur verið að þessi tenging sé ekki til staðar hjá eldri viðskiptavinum og getur því þurft að handskrá þessa tengingu í EmployeeXapUser.List. Hægt er að komast í EmployeeXapUser.List með því að slá það inn í skipanalínuna neðst í vinstra horni Kjarna og smella á enter. 

Sjálfvirk stofnun notanda

Hægt er að setja inn stillingu þannig þegar starfsmaður er stofnaður í Kjarna og notendanafnið skráð í spjaldið Starfsmaður að þá stofnist hann sem notandi og fær hlutverkið Starfsmannavefur. Mælt er með því að setja inn þessa stillingu ef starfsmenn eiga að fá strax aðgang að starfsmannavefnum þegar þeir hefja störf. Ef óskað er eftir því að fá þessa stillingu inn þarf að senda beiðni á service@origo.is 

Nánari upplýsingar má sjá hér: Notandi stofnaður sjálfkrafa þegar starfsmaður er stofnaður