Skattar - Forsendur RSK

Skattar - Forsendur RSK

Um áramót er hægt að sækja nýjar forsendur staðgreiðslu beint í Kjarna með vefþjónustu og stofnast þá ný lína fyrir skattaskilgreiningu nýja ársins.

Það má ekki vera til lína fyrir árið. Ef hún hefur verið stofnuð vegna td. launaáætlunar verður að eyða þeirri línu fyrst.

ATH ekki er hægt að sækja þessar upplýsingar fyrr en þær hafa verið gefnar út með formlegum hætti.

 

 

 

 

 

image-20250723-085400.png

 

Þegar smellt er á “Skattar - Forsendur RSK” kemur upp þessi valskjár.

Þar þarf að velja fyrsta dag nýja ársins og smella svo á Velja tímabil.

image-20250723-090844.png

 

Þegar farið er í Skattprósentur má sjá að ný lína hefur stofnast með skattaskilgreiningu fyrir nýja árið. Með vefþjónustunni eru sóttar upplýsingar um þrepaskatt, tryggingagjald, fjársýsluskatt og persónuafslátt fyrir mánuð. Aðrar upplýsingar eru fastar inni frá fyrra ári.

 

Nauðsynlegt er að skoða vel alla flipa nýja ársins til að ganga úr skugga um að allar upplýsingar séu réttar.