Vinnutímaskilgreiningar

Vinnutímaskilgreiningar

Hægt er að birta flipann vinnutímaskilgreiningar á launatöflum með því að setja inn stillingu undir Gildi.

Gildið er Time.Rules.Active = true 

Þetta gildi birtir flipann Vinnutímaskilgreiningar á öllum launatöflum. Það birtir einnig Svæðin Sleppa vinnutímaskilgreiningu og Vinnutímaskilgreiningar - Hópur í spjaldinu Viðverureglur.

image-20250731-143535.png
image-20250731-144210.png

Ef hakað er í reitinn Sleppa vinnutímaskilgreiningum í spjaldinu Viðverureglur þá reiknast ekki álag/yfirvinna skv. vinnutímaskilgreiningu á launatöflu.

Vinnutímaskilgreiningar er hægt að nota til að skilgreina td:

  • Dagvinnu sem reiknast með álagi

  • Dagvinnu sem reiknast ekki með álagi

  • Álag/dagvinna sem hlutfall af mánaðarlaunum.

 

image-20250731-145914.png

 

Í línu vinnutímaskilgreininga þarf að skilgreina á hvaða tíma sólarhrings álag og dagvinna reiknast. Nauðsynlegt er að hafa dagvinnutímabilið skilgreint líka svo að dagvinnutímar sjáist á tímayfirlitinu í Viðverunni.

Ef farið er með músina yfir línuna má sjá hvernig sólarhringurinn er skilgreindur og á hvaða tíma skilgreindir launaliðir reiknast.

Útskýring á svæðum vinnutímaskilgreininga:

  • Hópur - Hér er skráð inn heiti hóps þar sem við á. Heiti hóps þarf einnig að skrá inn á spjaldið Viðverureglur hjá starfsmanni.

  • Flokkur - Þarna er skilgreint hvort vinnutímaskilgreining sé vegna Dagvinnu, Veikinda eða Veikinda barna.

  • Tegund - Tími/dagsetning . Hægt að stilla útfrá tíma eða dagsetningu. Dagsetning er þá valin mánuður og dagur. Bara hægt að velja 1 dag og 1 mánuð fyir hverja línu.

  • Tími - Hér er skilgreindur tími frá og tími til. Dagurinn er fimmskiptur: Frá 00:00 til Tími 1 - Tími 2 - Tími 3 - Tími 4 til 23:59.

  • Launaliður nr. - Hér er skráð inn nr. launaliðasem eiga við valin tímabil.

  • Launaliður - Birtir heiti valins launaliðar.

  • Dagar - Haka þarf í þá daga sem vinnutímaskilgreining nær til.

  • Töflutímabil - Kemur sjálfkrafa frá þeirri töflu sem verið er að vinna í.

 

Þar sem um frekar flókna uppsetningu er að ræða þá er best að fá aðstoð frá ráðgjöfum Origo við þessa uppsetningu með því að senda beiðni á service@origo.is

 

ATH. vinnutímaskilgeiningar er ekki hægt að nota í þeim tilfellum þar sem þörf er á að vera með vakastkipulag