Markaðslaun PwC - Grunnstillingar

Stofngögn vegna skýrslunnar Markaðslaun PwC eru sótt á ýmsa staði í kerfinu en því til viðbótar þarf að setja inn stillingar á gráður og stöður auk þess sem stilla þarf hvaða starfsaldurstegund á að miða við ef starfsmenn eru með skráðan viðbótarstarfsaldur. 

Stillingar > Gildi

NúmerNafnKódiGildiAthugasemdir notenda, ekki skráðar í töfluna :)
HlaupandiPwCKjarakannanirtrueEf fyrirtæki  notar ekki PwC skýrsluna er gildið false. Þá er lokað á öll svæði í Kjarna tengd PwC
númerPwC.PayListIDKjarakannanir20Þetta er  númer þess dálkalista sem skýrslan sækir launagögn í.

PwC.OrgCompanyIDKjarakannanir6

PwC.HrSeniorityIDKjarakannanir3Þetta er  númer þeirrar starfsaldurstegundar sem nota skal í skýrsluna.

Gráður

Stillingar á gráður eru settar inn undir Kjarni > Stofnskrár > Menntun - Gráður. Þar er að finna svæðið PwC - Stig menntunar

Fljótlegra getur verið að skrá þessa flokkun í gegnum Select lista. 

Select listann er hægt að nálgast með því að smella á Select hnappinn í listanum yfir gráðurnar. 

Þannig er hægt að viðhalda gögnunum beint í listanum án þess að þurfa að opna hverja gráðu fyrir sig. 

Athugið að passa upp á að vista listann þegar gögnunum hefur verið viðhaldið


Ef upplýsingar birtast ekki í svæðinum "Stig menntunar" og "Svið menntunar í iðnskóla og háskóla" í skýrslunni Markaðslaun PwC þegar hún er keyrð upp þarf að skoða menntunarspjald þeirra starfsmanna. 

Dagsetningar þurfa að vera í svæðunum "Hóf nám" og "Lauk námi" svo þessi svæði sé birt í skýrslunni fyrir viðkomandi starfsmann.

Stöður

Stillingar á stöður eru settar inn undir Kjarni > Stofnskrár > Stöður.

Þar er að finna eftirtalin svæði: 

  1. Staða (e.Level) sérfræðings 
  2. Staða stjórnanda í skipuriti 

Bæði svæðin eru með fellilista með þeim atriðum sem velja á úr.

Tegund starfsaldurs

Í Stillingar> Gildi er sett inn númer þeirrar starfsaldurstegundar sem miða á við í skýrslunni. Stillingin er PwC.SeniorityID.

Númer viðeigandi starfsaldurstegundar er að finna í hliðarvalmynd Kjarni > Stofnskrár > Starfsaldur - Tegundir.