Breytingasaga
|
|
|---|---|
| Til að skoða breytingasögu í Kjarna, er farið í Aðgerðir og Breytingasaga valin. |
| Þá birtist gluggi þar sem mánuður og ár sem á að skoða er valið |
| Þegar breytingasaga er keyrð, birtast allar breytingar sem hafa verið gerðar á spjöldunum Grunnlaun, Lífeyrissjóður, Persónuafsláttur og Stéttarfélag fyrir valinn mánuð. Hægt er að birta breytingasögu fyrir önnur spjöld en setja þarf þá inn stillingu í Stillingar > Gildi. Stilling: Poet.SysTrace.EmployeeCards og telja þarf upp tækniheiti þeirra spjalda sem eiga að birtast í breytingasögunni. Einnig er hægt að hafa þessa stillingu niður á notendur. Ef það er ekki stilling inni þar sem talin eru upp þau spjöld sem eiga að birtast þá birtist breytingasagan fyrir spjöldin Grunnlaun, Lífeyrissjóður, Persónuafsláttur og Stéttarfélag. |