Þjónustugátt Corus
Hægt er að senda beiðnir um aðstoð á hjalp@corus.is eða í gegnum þjónustugáttina okkar. Þjónustusíminn er 516 1700.
Slóðin inn á þjónustugáttina er https://corus.atlassian.net/servicedesk
Þú þarft að setja inn netfangið þitt og smella á „Create password“. Þá færðu sendan link í tölvupósti til að búa til nýtt lykilorð.
Til að senda inn beiðni í gegnum gáttina er smellt á „Almenn aðstoð“ og erindi er skráð. Hægt er að senda inn viðhengi og myndir. Við biðjum viðskiptavini um að gæta að því hvers konar upplýsingar eru skráðar í mál út frá persónuverndarsjónarmiðum. Það sama á við þegar mál eru send í tölvupósti.
Athugið að þeir starfsmenn hjá ykkar fyrirtæki sem hafa aðgang að þjónustuborði Corus hafa möguleika á að sjá þær beiðnir sem sendar eru inn ef þið veljið að deila beiðninni með þeim. Hægt er að velja að deila beiðninni eða ekki (Share with).
Ef beiðni er send í tölvupósti er hún sjálfkrafa aðgengileg öllum öðrum í þínu fyrirtæki sem hafa aðgang að beiðnum í gegnum portalinn. Þú þarft því að temja þér að senda beiðni í gegnum þjónustugáttina og merkja hana séstaklega sem „Share with no one“ ef um er að ræða mál sem þitt samstarfsfólk á ekki að hafa aðgang að.
Hægt er að fylgjast með stöðu mála á þessari síðu undir „Requests“. Þar færðu upp lista yfir þau mál sem þú hefur sent inn sem og þau mál sem samstarfsfólk þitt hefur deilt með þér.