Frammistöðumat

Frammistöðumat

Stofnun á frammistöðumati og uppsetning á spurningum og frammistöðumatseyðublöðum fer fram á Kjarnavef.

 Í boði er að hafa heitið annað en Frammistöðumat. Í boði er Samtal, Starfsþróunarsamtal og Starfsmannasamtal. Ef óskað er eftir að heitið sé annað skal senda beiðni á hjalp@corus.is og taka fram hvaða heiti á að vera.

 

Fyrsta skrefið er að stofna spurningar undir flipanum Spurningar.

Smellt er á Stofna spurningu til að stofna nýja spurningu.

 

 

 

 

 

 

 

 

Tegund spurningar er valin inn og svo er heiti spurningar sett inn, hægt er að bæta við tungumáli ef starfsmenn eiga að geta valið að svara á ensku eða pólsku. Þá er farið í flipann Tungumál og smellt á Enska (ef enska á að vera í boði).

image-20260515-130643.png
image-20260515-130738.png

Svo er smellt á flipann Enska og þá er hægt að smella á Þýða alla spurningu

 

 

 

 

 

 

 

Undir flipanum Svarandi er valið inn hvort bæði starfsmaður og framkvæmdaraðili eiga að svara þessari spurningu eða eingöngu starfsmaðurinn eða eingöngu framkvæmdaraðilinn.

 

 

Ef valið er tegund spurningar = Velja marga eða Velja einn þá þarf einnig að stofna svarmöguleikana með því að smella á Bæta við valmöguleika.

 

 

 

Enging takmörk eru á fjölda spurninga í spurningabanka.

image-20260515-130826.png
image-20260515-131154.png

 

 

Næsta skref er að stofna eyðublöð undir flipanum Eyðublöð

 

 

 

Smellt er á Stofna eyðublað til að stofna nýtt eyðublað.

 

 

 

 

 

 

Heiti eyðublaðsins er sett inn og spurningar svo valdar inn úr spurningabanka í eyðublaðið, eða ný spurning stofnuð í leiðinni með því að smella á Ný spurning.

 

Hægt er að setja inn nánari lýsingu og einnig er hægt að setja spurningar í ákveðna spurningaflokka. Ef nota á spurningaflokka þá er smellt á Nýr spurningaflokkur.

 

Enging takmörk eru á fjölda eyðublaða.

image-20260515-131659.png
image-20260515-131810.png

 

Undir flipanum Yfirlit er svo hægt að tengja frammistöðumatseyðublað á starfsmann. Það er gert með því að smella á Tengja eyðublað.

image-20260515-132542.png

 

Hér er eyðublaðið valið inn og starfsmaðurinn sem á að stofna frammistöðumat fyrir. Það fyllist sjálfkrafa út í svæðið Framkvæmdaraðili frammistöðumats með upplýsingum um þann aðila sem er skráður sem framkvæmdaraðili frammistöðumats á skipulagseiningu starfsmannsins. Ef annar aðili á að meta þennan tiltekna starfsmann en almennt á við um starfsmenn þessarar skipulagseiningar þá er hægt að velja inn annan framkvæmdaraðila. Hægt er að skrá inn þær dagsetningar sem aðilar þurfa að vera búnir að fylla út frammistöðumatið fyrir. Dagsetning frammistöðumats er lokaskilafresturinn á matinu í heild, sú dagsetning má ekki vera á undan svarfrestum starfsmanns og yfirmanns en má vera sama dagsetning eða lengra fram í tímann. Hægt er að tengja áminningar við þessar dagsetningar. 

ATH. Allar dagsetningar verða að vera fram í tímann. Líka Dagsetning frammistöðumats. Ekki er hægt að svara matinu ef Dagsetning frammistöðumats er liðin.

Hægt er að stofna frammistöðumat á marga með því að velja inn annað hvort skipulagseiningar (haka þarf í Skipulagseining) eða fyrirtæki (haka þarf í Fyrirtæki). Í þessari aðgerð erfist framkvæmdaraðili af skipulagseiningu eða tengingu innan fyrirtækis.

image-20260515-132718.png

 

 

Undir flipanum Yfirlit er einnig yfirlit yfir öll frammistöðumöt framkvæmdaraðila. Hægt er að sjá stöðuna á frammistöðumatinu hjá starfsmanni og yfirmanni (grænt=lokið, gult=Í vinnslu) og einnig heildarstöðuna á matinu í dálkinum Staða (Ekki hafið, Í vinnslu eða Lokið).

 Framkvæmdaraðilinn svarar mati með því að smella á matið í yfirlitinu.

image-20260515-133058.png

 

 

 

Hægt er að velja tungumál i flipa og vista niðurstöður og klára síðar með því að smella á Vista eða skila strax með því að smella á Vista og Senda.

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Svo þegar báðir aðilar eru búnir að svara (starfsmaður og framkvæmdaraðili) og aðilar búnir að ræða saman þarf framkvæmdaraðili að skrá inn lokaniðurstöðu og Vista og senda.

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Þá fær frammistöðumatið stöðuna Lokið.

image-20260515-133209.png
image-20260515-133502.png
image-20260528-102020.png

 

 

Ef starfsmaður skiptir um starf þá sér nýr yfirmaður ekki eldri frammistöðmöt hjá starfsmanninum. Fyrrum yfirmaður hefur aðgang að frammistöðumötum starfsmannsins fram að þeim degi sem starfsmaður hættir eða er ekki lengur starfandi fyrir viðkomandi yfirmann.

 

Sjá frammistöðumat á starfsmannavef hér.