Útgáfa 3.8.5.2
Útgáfudagur 21.02.2017. Útgáfa 3.8.5.1 var ekki send út til viðskiptavina.
Útgáfan var send út til að laga eftirfarandi atriði:
Vinnutímaspjald - leyfa núll gildi í starfshlutfalli
Með útgáfu 3.8.5 kom breyting á vinnutímaspjaldinu þar sem spjaldið setti alltaf sjálfkrafa 100% í starfshlutfall. Það var síðan hægt að breyta því eftir á í minna starfshlutfall. Kerfið leyfði hinsvegar ekki að það væri sett 0 í starfshlutfallsreitinn. Þetta var lagað.
Gögn í spjaldinu Efla voru ekki að birtast
APPAIL-3848
Eftir að útgáfa 3.8.5 fór út birtust ekki gildi í spaldinu EmployeeDetailEfla - þrátt fyrir að öll gögn væru til staðar. Þetta var lagað svo nú virkar spjaldið eðlilega.
Listinn námskeið sýndi ranga staðsetningu
Listinn námskeið sýndi staðsetningu starfsmanns í stað þess að sýna staðsetningu námskeiðs. Þessu hefur nú verið breytt þannig að þegar listinn er opnaður sést staðsetning námskeiðs og hægt er að draga inn í hann staðsetningu starfsmanns sé þess óskað.
Starfsmannaveltuskýrsla
Skýrslan Starfsmannavelta var endanlega kláruð. Nánari upplýsingar um virkni hennar má finna hér.