7. Innlestur í áætlun

Hægt er að lesa inn færslur í áætlun með svipuðum hætti og þegar færslur eru lesnar inn í launakeyrslu með bunkainnlestri.

Það er td. gott að nota þá aðferð við að lesa uppbætur inn í áætlun.



Eins og í bunkainnlestri launa verður skjalið sem lesið er inn í áætlun að vera vistað á .csv formi.

Smellt er á "lesa bunka" og þá opnast þessi gluggi:

Skráarslóðin er valin og sett inn lýsing á bunka.  Ef lesa á inn færslur á einn mánuð er númer hans slegið inn í "mánuðir".

En ef lesa á inn á marga mánuði eru þeir skráðir inn með kommu á milli númera. Hakið tekið úr "Setja bunka í áætlun".

Þegar bunkinn hefur verið lesinn inn er hægt að skoða hann, með því að smella á "Skoða bunka" í flæðiritinu.

Ef bunkinn er í lagi er smellt á "Bunki í áætlun" þá opnast þessi gluggi:

Þarna þarf aftur að velja þann mánuð eða mánuði sem flytja á færslurnar í og smella svo á "Flytja"

Nú eru innlesnar færslur komnar inn í áætlunina á þann eða þá mánuði sem valdir voru og hægt að skoða þær með því að smella á "Skoða áætlun"