Flýtilyklar

Hér að neðan eru upplýsingar um þá flýtilykla sem eru til staðar í Kjarna í dag. Þessum flýtilyklum er einfalt að breyta ef viðskiptavinir vilja að aðrir flýtilyklar en þeir sem eru þegar skilgreindir framkvæmi eftirfarandi aðgerðir. 

Til þess að flýtilyklarnir virki þá þarf notandi að vera staddur með bendilinn á þeirri skjámynd sem flýtilykillinn á að virka fyrir. 

Notendur geta sjálfir bætt inn viðbótarflýtilyklum. Flýtilyklarnir eru skilgreindir í kerfisvalmynd undir Kjarni > Stillingar > Flýtilyklar. Þar er skilgreint hver flýtilykillinn er og við hvaða skipanir hann á. Skipanir fyrir aðgerðir í Kjarna er hægt að sjá með því að hafa kveikt á kemba glugganum. Kveikt er á honum með því að smella á Kemba hnappinn efst í hægra horni Kjarna. Einnig er hægt að óska eftir aðstoð frá ráðgjöfum Origo, service@origo.is, við að bæta inn nýjum flýtilyklum.

Flýtilykill

Hegðun

EscapeLokar glugga án þess að vista breytingar
Ctrl+HOpnar hjálp í browser notanda
Ctrl+F10Opnar/Lokar kemba
Ctrl+Alt+F10Sýnir hvaða skipun er opin
Ctrl+F8Sýnir tækniheiti
Ctrl+N Stofnar nýja færslu
InsertStofnar nýja færslu
Ctrl+EnterBætir við nýrri línu í .Select lista
Ctrl+S

Vistar færslu

Ctrl+REndursækir lista (refresh)
Ctrl+DEyðir valdri færslu í lista
DeleteEyðir valdri færslu í lista
Ctrl+DStaðfestir eyðingu á færslu í spjaldi
DeleteStaðfestir eyðingu á færslu í spjaldi
Ctrl+EBreytir valdri færslu í lista
Ctrl+F2Opnar valmynd
Ctrl+F3

Stillir breidd dálka í lista
 

Ctrl+F6

Víkkar samandregna hópa í lista
 

Ctrl+F7

Fellir samandregna hópa í lista
 

HomeFer í fremsta dálk í valinni línu í lista
EndFer í aftasta dálk í valinni línu í lista
Ctrl+HomeFer í efstu línu í lista
Ctrl+EndFer í neðstu línu í lista
DeleteEyðir út texta aftan við bendil
BackspaceEyðir út texta framan við bendil
Ctrl+F1

Felur/Sýnir valmynd

Ctrl+F4Lokar tab
Músasmellur með miðjutakka/hjóli á tabLokar tab