Staðfesta námskeið

Þegar námskeiði er lokið þarf að staðfesta námskeiðið til að gögn þátttakenda flytjist yfir í mannauðshluta kerfisins. 

Byrjað er á að yfirfara þátttakendur og breyta þátttökustöðu hjá þeim þátttakendum sem ekki mættu á námskeiðið í annað hvort Hætti við eða Mætti ekki. Einnig þarf að breyta ef einhverjir þátttakendur voru skráðir á biðlista en mættu þarf að breyta þátttökustöðu hjá þeim í Skráður.

Þegar því er lokið er farið í flipann Stofngögn og í reitnum Staða námskeiðs er stöðunni breytt í Staðfest. Þá kemur upp gluggi þar sem spurt er hvort vilji örugglega staðfesta námskeiðið, gögn þátttakenda flytjist yfir í mannauðshlutann. Þar er valið Áfram ef staðfesta á námskeiðið eða Hætta við ef ekki á að staðfesta námskeiðið.

Ef gera þarf breytingar á námskeiði sem er staðfest þarf að byrja á því að virkja námskeiðið aftur. Valið er Áfram ef gera á námskeiðið aftur virkt eða Hætta við ef hætta á við aðgerð. Passa þarf að eftir að námskeiðið er gert aftur virkt að vista námskeiðið, velja Vista og loka, áður en breytingar eru gerðar til að afturkalla gögn úr mannauðshluta kerfisins

Þegar búið er að gera námskeiðið aftur virkt og afturkalla gögn úr mannauðshluta er hægt að gera þær breytingar sem þarf að gera og staðfesta svo námskeiðið að nýju. Flytjast þá gögn aftur yfir í mannauðshlutann þegar námskeiðið er staðfest að nýju. 

Þau gögn sem flytjast yfir í mannauðshlutann á þátttakendur eru námskeið, hæfni og réttindi. Ef námskeið veitir ákveðin réttindi sem er með gildistíma þá er upphafsdagur réttindanna miðaður við seinasta dag sem námskeiðið var haldið. 

Gögn flytjast bara yfir í mannauðshlutann fyrir þá þátttakendur sem eru með þátttökustöðuna Skráður.