GDPR - Eyðingarforrit fyrir starfsmanna- og launaupplýsingar
Eyða starfsmannaupplýsingum
Hægt er á einfaldan hátt að eyða út starfsmannaupplýsingum og skjölum fyrir starfsmenn sem hætt hafa störfum fyrir X mánuðum síðan undir flipanum Aðgerðir > Eyða starfsmannaupplýsingum.
Sjálfgefna gildið í aðgerðinni er 0 mánuðir en til að breyta því er farið í Stillingar > Gildi > EmployeeDeleteDataWithoutPayGDPR.Months og í gildi er settur inn fjöldi mánaða. Hægt er að yfirskrifa mánaðarfjölda þegar aðgerðin er keyrð en en við mælum með því að setja inn stillingu svo sjálfvirka gildið sé ekki 0.
Mánaðarfjöldinn segir til um hve langt er frá því að starfsmaðurinn hætti störfum og er miðað við þá dagsetningu sem Hættur færslan í Tenging innan fyrirtækis spjaldinu tekur gildi. Kerfið horfi bara á þær Hættur færslur sem eru með gildir til dagsetningu 31.12.9999. Ef starfsmaður er í fleiri en einu starfi og hættur í einhverjum þeirra þá er ekkert átt við þann starfsmann. Starfsmannaupplýsingum er einungis eytt út ef starfsmaðurinn er hættur í öllum launamannanúmerum sem hann á.
Athugið að til þess að tryggja að launaseðlum sé ekki eytt af hættu starfsfólki þá þarf að ganga úr skugga um að númer skjalategundarinnar "Launaseðill" sé skilgreint í stillingu "FileRepositoryObjectDocumentType.Payslip" í "Stillingar > Gildi".
Þetta forrit/virkni gerir ekkert við gögn í ráðningarkerfi þar sem sér aðgerð er þar til þess að eyða gömlum gögnum.
Hvaða gögn eyðast
Hvað eyðist | Myndir |
|---|---|
Starfsmannaspjald
| |
Þekking og fræðsla
| |
Launamannanúmer
|
Þó að launagögnum sé eytt úr spjöldum starfsmanns er alltaf hægt að nálgast gögnin. Vegna bókhaldslaga verður að geyma bókhaldsgögn í ákveðinn tíma sem hægt er að nálgast í fyrirtækjalista í client.
Einnig eru skjölum starfsmannsins eytt úr skjalaskápnum NEMA launaseðlum. Athugið að til þess að tryggja að launaseðlum sé ekki eytt af hættu starfsfólki þá þarf að ganga úr skugga um að númer skjalategundarinnar "Launaseðill" sé skilgreint í stillingu "FileRepositoryObjectDocumentType.Payslip" í "Stillingar > Gildi".
Forritið finnur svo frammistöðumöt sem eru tengd á starfsmanninn. Öllum svörum er eytt þ.e. svari starfsmannins, svari yfirmannsins, sameiginlegum svörum og svo frammistöðumatsfærslunni sjálfri. Sama er gert við gátlistana, svörum gátlistans er eytt og svo færslunni sjálfri, og einnig námskeiðsþátttakanda, svörum hans við námskeiðsmati og viðbótarspurningum.
Eyða starfsmanna- og launaupplýsingum
Hægt er að eyða út ÖLLUM starfsmanna- og launaupplýsingum sem eru eldri en 7 ára. Er það gert undir flipanum Aðgerðir > Eyða starfsmanna- og launaupplýsingum.
Þessi aðgerð eyðir ÖLLUM upplýsingum um starfsmanninn en einungis ef öll gögn eru eldri en 7 ár eða 84 mánuðir. Gefa þarf sérstaklega aðgang að því að geta notað þessa aðgerð ef viðkomandi er ekki admin notandi.
Sjálfgefna gildið í aðgerðinni er 0 mánuðir en til að breyta því er farið í Stillingar > Gildi > EmployeeDeleteAllDataGDPR.Months og í gildi er settur inn fjöldi mánaða. Hægt er að yfirskrifa mánaðarfjölda þegar aðgerðin er keyrð en en við mælum með því að setja inn stillingu svo sjálfvirka gildið sé ekki 0. Aðgerðin passar þó uppá og leyfir ekki fjölda mánaða minni en 84 (sjö ár).
Ef starfsmaður á fleiri en eitt launamannanúmer þurfa öll launamannanúmerin að uppfylla kröfu um að hafa verið nægilega lengi hættir m.v. fjölda mánaða.