8. Bankaskrá til innheimtuaðila

Þegar búið er að loka útborgun er hægt að taka út bankaskrá fyrir greiðslur til lífeyrissjóða, stéttarfélaga og innheimtna.

Þessi bankaskrá er á sama formi og bankaskrá launa. Hún er vistuð niður og sótt í gegnum viðskiptabanka til greiðslu.

Ef vilji er til að nýta sér þennan möguleika, þá þarf að framkvæma eftirfarandi stillingar.

Stillingar í Kjarna

Gildi í flipanum Stillingar

Til þessa að bankaskrá birtist í Skila þarf að setja inn stillingu í Gildi "SysBank3rdParty.Show" og "true" í gildi.

Einnig þarf að setja inn stillingu sem segir til um hvar bankaskráin á að vistast niður "SysBank3rdParty.DiskPath" í hafa í gildi t.d "C:\XAP\Kjarni\@PayCompanyName\@PayID_bankaskráInnheimtuadila.txt"

Stofnskrár í hliðarvali

Bankakrá er samsett úr gögnum sem sótt eru í fyrirtækið og innheimtuaðilana en þær upplýsingar eru skráðar inn í Kjarna í Hliðarvali > Stofnskrár.

Þessar upplýsingar eru kennitölur, bankaupplýsingar og gjalddagi. Ein bankaskrá er útbúin fyrir hvern gjalddaga.

Setja þarf inn Banki nr. fyrirtækis í Stofnskrár/Fyrirtæki



í stofnupplýsingum lífeyrissjóða, stéttarfélag og innheimtna þarf að setja inn réttar banka upplýsingar 





og haka þarf í stillinguna "Bankaskrá"  og skrá inn gjalddaga í flipanum Skilagrein. Bankaskrárnar sem verða til skiptast upp á gjalddaga.

Þegar búið er að setja inn áður taldar stillingar þá verður Bankaskrá innheimtuaðila aðgengileg í skilagreinatré í Skila, annarsvegar undir möppunni Útborgun og hins vegar undir möppunni Skilagreinamánuður.  Tímabil skilagreina á stofnun ræður því í hvorri bankaskránni viðkomandi stofnun lendir.