Launaseðlar á skjá

Skráning launa - hnappurinn Launaseðill

 

Skráning launa - hnappurinn Launaseðill

 

 

Þegar unnið er í skráningarmynd launa er ávallt hægt að skoða launaseðil fyrir yfirstandandi vinnslu þ.e. um leið og einhver skráning er komin á starfsmann.

Smellt er á hnapp í tækjaslá og opnast þá nýr flipi með launaseðli starfsmanns.

 

 

 

Sjálfgefið birtist starfsaldur á launaseðli en ef ekki er óskað eftir að birta hann á seðlinum þarf að setja inn stillingu í Gildi PaySlip.Show.RecruitmentTotal og setja false í gildi.

Til þess að birta persónuálag á launaseðli þarf að setja í Gildi stillinguna PaySlip.Show.PayTotalBonus og true í gildi.

Til þess að birta launatímabil á launaseðli þarf að setja í Gildi stillinguna PayPaidDay og upphafsdag tímabils í gildi.

Til þess að birta stöðu á launaseðli þarf að setja í Gildi stillinguna PaySlip.UsePositionHeaders og true í gildi.

 

Fyrir kemur að launaseðill prentast ekki út á sama hátt og hann birtist á skjá. Þá er gott ráð að prófa að vista seðilinn sem PDF skjal. Ef seðillinn kemur eðlilegur í PDF skjali og prentast eðlilega út þannig, þá þarf að hafa samband við starfsmenn tölvudeildar og biðja um aðstoð varðandi prent driver.

Til að prenta óvistaðan launaseðil sem PDF skjal er einfaldast að smella á táknið Export Document í tækjaslá launaseðils, sjá mynd.

Einnig má velja prentaratáknið og velja þar Print to PDF.

 

Skráning launa - hnappurinn Útborganir

 

Skráning launa - hnappurinn Útborganir

 

 

Í tækjaslá launaskráningar er hnappurinn Útborganir.

Hér er hægt að skoða eldri launaseðla starfsmanns fyrir tiltekna útborgun. Ein lína er valin og tvísmellt á hana, við það opnast launaseðill þeirrar línu. Einnig er hægt að hærismella. Ef búið er að vista launaseðil í skjalaskjáp opnast vistaður launaseðill.

Launaseðlar í launahring

 

Launaseðlar í launahring

 

 

Neðarlega vinstra megin við launahringinn er textinn Launaseðill. Þegar smellt er á þennan texta opnast valskjár þar sem hægt er að velja að prenta fyrir einn starfsmann eða alla og eða velja úrtak eftir afhendingarmáta. Einnig er hægt að velja um röðun seðla á skjá, í stafrófsröð, starfsmannanúmeraröð, eftir skipulagseiningu eða eftir kostnaðarstöð. Þegar útborgun er opin er bara hægt að prenta launaseðla úr launakeyrslu. Þegar búið er að loka útborgun og vista launaseðla í skjalaskáp er hægt að skoða vistaða launaseðla, ath það er mun fljótlegra að skoða vistaða launaseðla en að skoða launaseðla úr launakeyrslu.

Ef útborgun er lokuð þá ætti að vera til launaseðill í skjalaskáp. Byrjað er á því að reyna að finna það skjal. Ef það er til þá er það opnað.
Ef það er ekki til þá birtast skilaboð svo notandinn sé meðvitaður um að launaseðillinn sé myndaður en ekki sóttur í skjalaskáp.

 

 

Launaseðlar í útborgunartré

 

Launaseðlar í útborgunartré

 

Í útborgunartré í hliðarvali Kjarna er hægt að nálgast launaseðla með því að hægri smella á valda útborgun. Þá kemur upp sami valskjár og opnast fyrir launaseðla í launahring.