...
Verknúmer á starfsmann í Tenging innan fyrirtækis
Verknúmer er hægt að tengja beint á starfsmann í spjaldinu Tenging innan fyrirtækis og eru verknúmerasvæðin nú birt á neðri hluta skjásins.
Verknúmerasvæði í listanum Tenging innan fyrirtækis
Verknúmerasvæðin, Verkefni, Verkefni nr. og Verkefni bókhaldslykill, er nú hægt að draga inn í listann Tenging innan fyrirtækis.
Annað stöðuheiti birt í lista yfir stöður
Svæðið Annað stöðuheiti er nú birt í lista yfir stöður þegar hann er keyrður upp og þarf ekki að draga það sérstaklega inn í listann. Þetta getur t.d. verið þægilegt ef tvær stöður eru með sama heiti en annað stöðuheiti á stöðunum er ekki það sama. Þá er hægt að sjá annað stöðuheiti strax þegar tengja á stöðu á starfsmann upp á það hvor þessara tveggja á við um þann starfsmann sem verið er að skrá á stöðu.