...
Draga launaliði saman í áramótastöðu á launaseðli | |
---|---|
Hægt er að draga saman valda launaliði í áramótastöðu og birta þá þar undir nýju heiti. Þetta er t.d. gagnlegt við birtingu orlofsstöðu eða annarar stöðu sem samanstendur af fleiri en einum launalið. Réttindastaða launamanns verður fyrir vikið augljósari á launaseðli. Söfnun þarf einnig að nota á þá launaliði sem eiga að vera með söfnunarár í áramótastöðu eins og t.d áunnið orlof. Eftir að Söfnunarhópur hefur verið búinn til er hann tengdur á þá launaliði sem við á í Uppsetningu launaseðils, sjá hér að framan. Þá eru launaliðirnir sjálfir merktir „Ekki sýna í áramótastöðu“ en fá allir sama safnflokkinn og koma því í einni tölu á seðli. Launaliður sem á ekki að koma fram á launaseðli en á að vera með söfnunarár í áramótastöðu þá þarf söfnunin að vera stilltur þannig að svæðið Hópur á launaseðli sé Óskilgreint. Stofna „Söfnun“ Söfnunarhópur er stofnaður í Launaliðum í flipanum Tafla/Seðill/Hópar á hverjum launalið. Hægt er að vera með eins marga söfnunarhópa og þurfa þykir, alltaf er hægt að stofna nýja og eða breyta. Farið er í launaliði, tvísmellt á einn launalið og þar farið í flipann „Tafla/Seðill/Hópur“. Neðarlega í þeim flipa er svæðið „Söfnun nr“. Bendillinn staðsettur í númersvæði, CTRL takkanum haldið niðri og músin notuð til að smella á þrjá punkta hægra megin við númerasvæðið. Þá opnast nýr gluggi og þar er smellt á græna plúsinn til að stofna nýjan safnflokk. | |
Dæmi Orlofs og desemberuppbót á að birtast á launaseðli en við viljum sameina þessa tvo liði undir Uppbætur í áramótastöðu.
| |
2. Stofna launaseðils uppsetningu í „Launaseðill – uppsetning“ sem birtir launalið á launaseðli en ekki í áramótastöðu, sjá hér að framan. Tengja síðan þennan söfnunarhóp við þá launaseðils uppsetningu neðst í flipanum „Áramótafærsla“ | |
3. Tengja nú uppsetningu launaseðils á launaliðinn. |
...