...
Ef stilling var inni varðandi það að starfsmenn gætu breytt skattkortsupplýsingum á starfsmannavef birtist einnig sjálfkrafa sá möguleiki að setja inn skattkort og makaskattkort. Því hefur nú verið breytt og bætt hefur verið við stillingunum Employee.Web.Create.EmployeeMasterTaxCard og Employee.Web.Create.EmployeeMasterTaxCardSpouse sem verða að vera settar á true svo þessi möguleiki sé fyrir hendi að setja inn skattkort á starfsmannavefnum. Núna verður því stillt default að starfsmenn geti ekki bætt á sig skattkorti, það verður bara hægt ef þessi nýja stilling er á true
Starfsmannavefur - Frammistöðumat
Þegar yfirmenn smelltu á Frammistöðumat undirmanna á starfsmannavefnum gátu þeir filterað eftir árum. Nú hefur verið bætt við sá möguleiki að filtera einnig eftir nafni starfsmanns.