Stillingar á því hvernig launaseðill er uppsettur eru skráðar inn í listan listann Launaseðill – uppsetning í hliðarvalmynd launa. Notendum er ráðlagt . Starfsmenn Applicon setja launaseðilinn upp í samráði við notendur og er það hluti af innleiðingarvinnu í upphafi.

Notendur geta breytt uppsetningu sjálfir ef þess gerist þörf. Hægt er að fá ráðgjöf hjá sérfræðingum Applicon við uppsetningu og breytingu á launaseðlumImage Removed.  Hægt er að vera með eins margar uppsetningar og þurfa þykir, alltaf er hægt að stofna nýjar og eða breyta eldri.

Til að skoða hvaða launaliðir eru með tiltekna uppsetningu er tvísmellt á flokkinn og þar valið „Tilheyrandi launaliðir“ í efra hægra horni gluggans.


Stofna flokk
Image Added

Til að stofna nýjann flokk er smellt á græna plúsinn í tækjaslánni. Nýjum flokki gefið númer og nafn, hakað í það sem við á í samantekt. Notið fellivalið til að ákveða hvaða texti á að koma á seðilinn.

Fyrir neðan Samamtektina eru tveir flipar, annars vegar Launafærsla og hins vegar Áramótafærsla.

Launafærsla.

Fellival er í boði til að ákvarða Tíma/einingar, taxtaupphæð og samtals laun/frádrátt. Núll kemur sjálfvalið í aukastöfum, en því má breyta með því að skrifa í staðinn fjölda þeirra aukastafa sem óskað er eftir.

Einnig er hægt að sleppa því að birta launalið á launaseðli með því að haka í þar til gert hak beint fyrir neðan textann Launafærsla.

Áramótafærsla

Þessi flipi er sambærilegur við Launafærsluflipann en til viðbótar er komin „Söfnun“ sjá næsta kafla „Draga launaliði saman í áramótstöðu á launaseðli“.

Image Added

Áramótafærsla

Þessi flipi er sambærilegur við Launafærsluflipann en til viðbótar er komin „Söfnun“ sjá næsta kafla „Draga launaliði saman í áramótstöðu á launaseðli“.

Draga launaliði saman í áramótastöðu á launaseðli
Image Added

Hægt er að draga saman valda launaliði í áramótastöðu og birta þá þar undir nýju heiti.  Þetta er t.d. gagnlegt við birtingu orlofsstöðu eða annarar stöðu sem samanstendur af fleiri en einum launalið. Réttindastaða launamanns verður fyrir vikið augljósari á launaseðli.

Eftir að Söfnunarhópur hefur verið búinn til er hann tengdur á þá launaliði sem við á í Uppsetningu launaseðils, sjá hér að framan. Þá eru launaliðirnir sjálfir merktir „Ekki sýna í áramótastöðu“ en fá allir sama safnflokkinn og koma því í einni tölu á seðli.

Stofna „Söfnun“

Söfnunarhópur er stofnaður í Launaliðum í flipanum Tafla/Seðill/Hópar á hverjum launalið.  Hægt er að vera með eins marga söfnunarhópa og þurfa þykir, alltaf er hægt að stofna nýja og eða breyta.

Farið er í launaliði, tvísmellt á einn launalið og þar farið í flipann „Tafla/Seðill/Hópur“. Neðarlega í þeim flipa er svæðið „Söfnun nr“. Bendillinn staðsettur í númersvæði, CTRL takkanum haldið niðri og músin notuð til að smella á þrjá punkta hægra megin við númerasvæðið.

Þá opnast nýr gluggi og þar er smellt á græna plúsinn til að stofna nýjan safnflokk.

Image Added

Dæmi

Orlofs og desemberuppbót á að birtast á launaseðli en við viljum sameina þessa tvo liði undir Uppbætur í áramótastöðu.

  1. Stofnum söfnunarhópinn Uppbætur í Launaliðum, eins og fram kemur hér að ofan.

 

 

Image Added

2. Stofna launaseðils uppsetningu í „Launaseðill – uppsetning“ sem birtir launalið á launaseðli en ekki í áramótastöðu, sjá hér að framan. Tengja síðan þennan söfnunarhóp við þá launaseðils uppsetningu neðst í flipanum „Áramótafærsla“

 

 

Image Added

3. Tengja nú uppsetningu launaseðils á launaliðinn.