Versions Compared

Key

  • This line was added.
  • This line was removed.
  • Formatting was changed.

Hægt er að lesa inn stofngögn og raungögn í Kjarna með .csv skrám. Notendum er ráðlagt að fá aðstoð hjá ráðgjöfum Applicon Origo þegar listar eru lesnir inn í fyrsta sinn. Þá er einnig hægt að uppfæra eldri lista með því að lesa inn .csv eða skrár.
Í innlestri gagna er nær alltaf verið að lesa inn gögn í einhver spjöld sem til eru í kerfinu. Spjöldin geta ýmist tilheyrt ákveðnum starfsmanni (launamanni) eða tilheyrt stofngögnum.
Hér verður ekki fjallað um bunkainnlestur launagagna, þeirri aðgerð er gerð góð skil hér.

...

Innlestur á gögnum í spjald - dæmi: Innlestur á gögnum í spjaldið Banki

Þegar Excel skjalið er tilbúið er það vistað sem .csv skrá áður en það er lesið inn. Til að lesa inn skjalið þarf að vita tækniheitið á spjaldinu banki. Til að finna það er best að ýta á hnappinn Kemba efst í hægra horninu á kerfinu og opna síðan spjaldið. Þá birtist textagluggi neðst í kerfinu sem vísar í heitið á spjaldinu. Tækniheitið fyrir spjaldið banki er EmployeeMasterBank 

 

Því næst er tækniheiti spjaldsins sem á að lesa inn í slegið inn í gluggan Skipun neðst í kerfinu + .Import

Þá opnast þessi innlestrar gluggi. 

Innlestrarskjalið er sótt með því að ýta á punktalínuna. 

Hakað er við hvort að verið sé að stofna (lesa inn í fyrsta sinn), uppfæra eða eyða gögnum. Notendum er bent á að leita ráða hjá ráðgjöfum Applicon Origo þegar verið er að uppfæra eða eyða gögnum. 
Þegar innlestri er lokið opnast listi með öllum gögnum sem lesin voru inn. Ef að listinn er réttur er aðgerðin kláruð með því að ýta á Vista hnappinn í tækjastikunni. 

Þegar spjaldið Banki er opnað eftir innlesturinn má sjá að upplýsingarnar sem lesnar voru inn birtast nú í spjaldi viðkomandi starfsmanns

...